Valsblaðið - 01.05.1984, Síða 48
46
VALSBLAÐIÐ
I minningu látinna Valsmanna
Þorsteinn B.
Jónsson
19/ 7 1908 16/ 7 1984
í sumar féll frá Þorsteinn B. Jóns-
son múrari, einn dyggasti stuðnings-
maður sem Valur hefur átt. Þorsteinn,
eða Steini múrari, eins og hann var
kallaður fæddist árið 1908 og var því
75 ára er hann lézt.
Þorsteinn kynntist knattspyrnu í
KFUM, fyrst með Hvat og síðar með
Val. Steini var aldrei neinn stórspilari
en það duldist engum að í brjósti þessa
vörpulega manns sló Valshjarta. Hug-
ur hans til Vals var mikill og hann taldi
ekki eftir sér störf s.s. málningarvinnu
fyrir félagið þegar þess var þörf. Þá sá
Þorsteinn flesta leiki Vals í áratugi og
var einstaklega tryggur og hvetjandi
áhangandi. Niðjar Þorsteins hafa tölu-
vert komið við sögu Vals, og má vafa-
laust rekja það til eggjunar Steina og
hvatningar, en þessu öllu eru gerð góð
skil í 31. tölublaði Valsblaðsins, 1973,
en þar er fjallað um þessa miklu Vals-
fjölskyldu. Nægir að nefna hér bróður
Steina, Jón G.S. Jónsson mikinn Vals-
mann, synina Sigurð og Guðmund sem
æfðu báðir með yngri flokkunum
(Guðmundur varð síðar einn bezti
körfuknattleiksmaður landsins, lék
með ÍR, meðan Sigurður varð að
hætta vegna meiðsla, en heldur enn
tryggð við Val eins og faðir hans gerði
alla tíð), og dóttursynina, tvíburana
Ólaf og Þorstein Runólfssyni, en þeir
léku með Val alla yngri flokkana með
góðum árangri.
Með Þorsteini B. Jónssyni er geng-
inn afar dyggur stuðningsmaður, einn
sá tryggasti í gegnum tíðina, maður
sem fylgdist með leikjum Vals frá 1918
þar til skömmu áður en yfir lauk.
Maður sem sá Val verða íslandsmeist-
ara í 1. skipti árið 1930, var viðstaddur
stórleikinn eftirminnilega gegn Benfica
1968 og var yfirleitt viðstaddur merkis-
atburði í sögu félagsins. Það er hverjum
Valsmanni hollt að hugleiða það, að
Valur á langa og merkilega sögu að
baki, og gleyma ekki frumherjunum,
mönnunum sem lifðu „mögru árin‘ en
gáfust ekki upp. Það var einmitt helsta
hvatning Þorsteins heitins til leik-
manna, að gefast aldrei upp. Vilji er
allt sem þarf.
Knattspyrnufélagið Valur heiðrar
minningu Þorsteins B. Jonssonar og
sendir ættingjum hans samúðarkveðj-
ur vegna fráfalls hans.
Hörður Hilmarsson
Murdo
McDougall
10/10 1908 20/10 1984
Látinn er í Glasgow Murdo Mc
Dougall Valsmaðurinn og íslandsvin-
urinn kunni. Murdo kom fyrst til ís-
lands árið 1937 fyrir milligöngu séra
Róberts Jack þjálfara Vals. Gerðist
Murdo leikmaður með Val, en síðan
þjálfari eftir að Róbert Jack flutti
norður í land. Murdo þjálfaði hjá Val
um tveggja ára skeið að þessu sinni, og
gerði meistaraflokk félagsins að ís-
landsmeisturum bæði árin, 1937 og
1938. Þessi lágvaxni en leikni knatt-
spyrnumaður tók miklu ástfóstri við
land og þjóð, og hafði ávallt í huga að
koma aftur til starfa á íslandi. Til Vals
kom Murdo aftur 1959 eftir að hafa
þjálfað í Hafnarfirði um tíma. í fimm
ár þjálfaði Murdo yngri flokka Vals af
miklum áhuga og ósérhlífni, en vann
einnig í Málningarverksmiðjunni Hörpu
samhliða þjálfuninni. Sem leiðbein-
andi yngstu leikmanna Vals var Murdo
virtur og vel liðinn. Undir hans leið-
sögn stigu margir efnispiltar sín fyrstu
spor á knattspyrnuvellinum, piltar sem
síðar meir urðu uppistaðan í 1. deildar-
liði Vals og margir landsliðsmenn að
auki.
Þótt Murdo flyttist aftur til Skot-
lands rofnuðu aldrei tengsl hans við ís-
land og íslenska knattspyrnuáhuga-
menn. Hér hafði hann eignast marga
góða vini sem gleymdu ekki fórnfýsi
Bjarni
Jónsson
28/ 3 1913 21/12 1983
Vorið 1968 fluttu að Hlíðarenda
hjónin Bjarni Jónsson og Anita Jóns-
son. Tóku þau að sér að hafa umsjón
með félagsheimili okkar Valsmanna.
Ræktu þau hjónin það starf sitt af
slíkri trúmennsku og smekkvísi að eftir
var tekið. Raunar voru þau störf sem
sinna þurfti í félagsheimilinu mest á
herðum Anitu, enda hafði Bjarni heil-
inn leigubifreiðaakstur að aðalstarfi.
En hann var þó ætíð boðinn og búinn
og lítillæti skotans skemmtilega.
Murdo var boðið hingað til íslands
1981 til að vera viðstaddur hátíð á 70
ára afmæli Vals. Vinir hans buðu hon-
um einnig hingað upp í fyrra er Murdo
varð 75 ára, og var honum þá haldið
samsæti. Islendingar á ferð í Skotlandi
hittu oft þennan mikla knattspyrnu-
áhugamann á leikjum í Glasgow, eða á
hótelum þegar íslensk lið voru á ferð í
heimaborg Murdo. Um miðjan októ-
ber s.l. var Murdo umvafinn Valsvin-
um og öðrum knattspyrnuáhugamönn-
um þegar ísland og Skotland léku
landsleik í Glasgow. Glaður og hress í
góðum hópi, en fáum dögum síðar var
hann allur.
Knattspyrnufélagið Valur metur
mikils þau störf sem Murdo Mc
Dougall vann fyrir félagið, vináttu
hans og tryggð, og sendir ættingjum
hans samúðarkveðjur.
Ægir Ferdinandsson/Hörður Hilmarsson