Valsblaðið - 01.05.1984, Qupperneq 49
VALSBLAÐIÐ
47
að rétta okkur Valsmönnum hjálpar-
hönd hvenær sem þurfti.
Bjarni var nokkuð dulur í skapi og
flíkaði ógjarnan tilfinningum sínum.
Af þeim sökum gat hann stundum
virkað þurr á manninn. En þeir okkar
sem kynntust honum fundu strax að
undir hrjúfu yfirborðinu sló gott
hjarta.
Að leiðarlokum viljum við þakka
Bjarna og Anitu dyggilega þjónustu og
alúð við félag okkar, en árin þeirra á
Hlíðarenda urðu fjórtán. Frú Anitu og
öðrum ástvinum sendum við okkar
innilegustu samúðarkveðjur og biðjum
þess að algóður Guð veiti þeim huggun
í þungri þraut.
Knallspyrnufélagið Valur
Agnar
Guðmundsson
tímar liðu gera garðinn frægan, enda
reyndist svo. Agnar valdi sér stöðu
vinstri útherja og sló ekki slöku við
æfingar, enda náði hann brátt slíkum
árangri, að hann varð einn snjallasti
vinstri útherji og leiknasti sem þá lék í
þeirri stöðu hér. Agnar var einn af
þeim köppum Vals sem færðu félaginu
Islandsmeistarabikarinn eftirsótta á
því sögulega ári 1930. Auk knattspyrn-
unnar stundaði Agnar fimleika með
mjög góðum árangri og hlaut viður-
kenningar fyrir hvoru tveggja.
Agnar var einstaklega góður félagi.
Eg minnist þess að þegar ég gekk í Val
bauð hann mig velkominn, jafnframt
því sem hann óskaði þess að ég festi
þar rætur í framtíðinni sem og varð.
Ég kunni vel að meta þessa vinsemd.
Er kom að því að Agnar lagði skóna
á hilluna sneri hann sér að félagsmál-
unum. Hann tók sæti í fulltrúaráði fé-
lagsins, var í aðalstjórn um skeið og lét
sig málefni félagsins miklu skipta.
Hann reyndist þar sem annars staðar
hinn glöggi og sanni félagi, alltaf
reiðubúinn til góðra verka.
Guðmundur
Asmundsson
13/ 3 1938 29/ 6 1984
Guðmundur varð bráðkvaddur nú í
sumar aðeins 46 ára gamall. Hann
hafði verið að leik hér á Valsvellinum
með starfsfélögum sínum hjá Hita-
veitu Reykjavíkur, en þar hafði hann
unnið í fjölda ára af stakri trú-
mennsku, sem honum var eðlileg.
Guðmundur lék talsvert knattspyrnu
með Val á yngri árum, en fyrst og
fremst minnumst við hans fyrir störf
fyrir félagið í ýmsum stjórnum og
nefndum um margra ára skeið. Hann
sat í mörg ár í stjórn handknattleiks-
deildar og þá var hann um tíma vara-
maður í aðalstjórn Vals. Guðmundur
var þó lengst starfandi í vallarnefnd,
sem hefur umsjón og eftirlit með völl-
um félagssins að Hlíðarenda. Hann
var einn þeirra manna, sem lét sig hag
félagsins mikið varða og fylgdist
grannt með öllu, sem var að gerast í
málum þess á hverjum tíma. Þeir voru
ófáir leikirnir hjá Val, þar sem hann
vantaði. Með Guðmundi Ásmundssyni
er genginn góður félagi og einlægur
Valsmaður, sem minnst er með virð-
ingu og þökk fyrir óeigingjarnt starf í
þágu Vals.
Garðar Jóhannsson.
Breiðfjörð
14/10 1910 19/6 1983
Agnar Breiðfjörð skipaði sér ungur
að árum undir merki Vals og stóð þar
stöðugur til aldurtilastundar. Hann
hóf knattspyrnuferil sinn í yngri flokk-
unum og sýndi þegar mikla hæfileika,
svo ekki lék á tveim tungum, að þar
átti Valur framtíðarefni, sem mundi er
Valur á og hefur átt marga góða fé-
laga og dugmikla í tímans rás. Um það
vitna margþættar og miklar fram-
kvæmdir á vegum félagsins, nú og
áður. Megi Valur eignast sem flesta fé-
laga Agnari líka, sanngjarna og ráð-
holla.
Agnar Breiðfjörð var fæddur í
Reykjavík 14. október 1910 og andað-
ist í Reykjavík 19. júní 1983, 73 ára að
aldri.
Einar Björnsson