Valsblaðið - 01.05.1984, Síða 50
48
VALSBLAÐIÐ
i
Hólmgeir
Jónsson
6/9 1910 16/111984
Föstudaginn 16 nóvember s.l.
andaðist á gjörgæzludeild Borgarspít-
alans Hólmgeir G. Jónsson á 75.
aldursári.
Hólmgeir var borinn og barnfæddur
Reykvikingur. Á yngri árum átti hann
heima í austurbænum, á gömlu og
grónu Vals-svæði. Hann byrjaði
snemma að leika knattspyrnu með Val
og keppti með félaginu í öllum aldurs-
flokkum. Hann var í sigurliði Vals á
alþingishátíðarárinu 1930 er Valur
hreppti íslandsmeistaratitilinn í fyrsta
sinn. Hann var alla tíð mjög áhuga-
samur Valsmaður. Hann var í fyrsta
fulltrúaráði félagsins og átti þar alla
tíð sæti síðan. Hann tók þátt í fjöl-
mörgum utanferðum Valsmanna. Þar
má fyrst telja utanför Vals 1931 til
Noregs og Danmerkur þar sem Valur
lék 6 leiki. Hann tók mikinn þátt í
undirbúningi þeirrar ferðar, en sá
undirbúningur hófst raunar strax af
fullum krafti þegar Valur hafði unnið
sinn fyrsta íslandsmeistaratitil.
Hólmgeir tók þátt í mörgum utan-
landsferðum, bæði á vegum Vals og
einnig með úrvalsliði Reykjavíkur-
félaganna. Hólmgeir var í nefnd þeirri
sem vann að uppbyggingu Hlíðarenda
fyrstu árin, en kaupin á Hlíðarenda
hafa öðru fremur markað spor í sögu
Vals, og þeir sem þar lögðu hönd á
plóginn voru framsýnir menn.
Hólmgeir Jónsson var alla tíð mjög
einlægur og traustur félagi í Val.
Honum voru falin mörg trúnaðarstörf
af hálfu Valsmanna, og öll rækti hann
þau af stakri samvizkusemi og ósér-
hlífni.
Á síðari árum fylgdist hann vel með
í starfi Valsmanna. Hann fór mjög oft
á völlinn sem áhorfandi og hvetjandi
Valsmenn í keppni þeirra.
Hólmgeir var í eðli sínu félagslyndur
maður. Hann barst aldrei mikið á og
hafði engan áhuga á að láta mikið á sér
bera. Hann var stækur reglumaður í
hvívetna og vildi ekki vamm sitt vita.
Hann var ævinlega léttur og glaður
hvernær sem maður hitti hann. Sá sem
þessar línur ritar átti því láni að fagna
að vera í mörg ár nágranni Hólmgeirs.
Það atvikaðist svo að við vorum báðir
aldir upp í austurbænum og að sjálf-
sögðu báðir Valsmenn. Árið 1945
fluttist ég í vesturbæinn og skömmu
síðar byggði Hólmgeir ásamt öðrum,
næsta hús, Grenimel 15, og bjó þar
alla tíð síðan. Við vorum því ntjög
nánir grannar í mörg ár og betri
nágranna en Hólmgeir og fjölskyldu
hans var ekki unnt að kjósa sér. Hann
hafði alltaf tíma til að sinna öðrum og
rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda.
Hann var góður heimilisfaðir og
hafði yndi af að umgangast fjölskyldu
sína, og dætrabörnin áttu þar góðan
afa, sem alltaf hafði tíma til að sinna
þeim.
Með Hólmgeiri Jónssyni er horfinn
einn af þessum gömlu, góðu og traustu
Valsmönnum, sem aldrei töldu el’tir að
leggja sitt af mörkum.
Valsmenn kveðja nú Hólmgeir með
heilli þökk fyrir samstarfið.
Bjarni Guðbjörnsson.
popco |>T
Fellsmúli 24. Pósthólf 4326, 124 Reykjavík.
Sími 687788.
Torfi
Guðbjörnsson
5/12 1907 18/ 3 1983
Torfi Guðbjörnsson gerðist ungur
að árum félagi í Val og var þar tryggur
og góður félagi alla tíð síðan, eins og
bræður hans Friðjón og Bjarni. Jens
bróðir þeirra var aftur á móti lengi for-
maður Glímutelagsins Ármanns og
framámaður i íÞróttamálum landsins.
Torfi var fremur fáskiptinn en vina-
fastur og trygglyndur með afbrigðum. i
Hann lék með 1. flokki Vals í kringum
1930 og var í liðinu sem vann I. flokks-
mótið 1933. Torfi hafði veikst illa af
inflúensu 1918 og gat hann aldrei á
heilum sér tekið eftir það.
Torfi vann ungur að árum í verzlun-
inni Vísi Laugavegi 1 og einnig hjá J.
Þorláksson og Norðmann. Síðan
gerðist hann vallarvörður um skeið og
nutu Valsmenn góðs af því. Seinustu
árin vann Torfi hjá Tollstjóraembætt-
inu í Reykjavík. Torfi giftist 1949
Rósu Jónatansdóttur Jónssonar
gullsmiðs og eignuðust þau eina dóttur,
sem nú er uppkomin og gil't.
Blessuð sé minning Torfa Guð-
björnssonar
Með Valskveðju
Þorkell Ingvarsson