Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands - 01.01.1915, Síða 16

Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands - 01.01.1915, Síða 16
16 geisla-orkan eða Röntgengeislamagnið er. Nú er Rönt- gengeislakúla sú, sem andskautið (antikatodan) kastar út frá sjer í allar áttir, misjöfn að magni til. Þjett- astir eru geislarnir þverbeint út frá brennfleti and- skautsins. Flatarorku kallar maður þá Röntgengeislaorku, +sem fellur á 1 cm2 hlutarins meðan geisl- arnir skina á hann. Nú er auðsætt að flatarorkan er einnig mjög mismunandi eft- ir því, hve langt hlut- urinn er frá brenn- fletinum. Hún stendur í öfugu hlutfalli við kvadrat fjarlægðarinnar. Sje t. d. hluturinn í 30 cm fjarlægð frá brennfi^tinum og skíni Röntgengeislarnir á hann í 9 sekúndur, þá er það hið sama sem, ef hann væri í 10 cm fjarlægð og geislunartíminn 32= 9 sinnum styttri, altsvo 1 sek. Til þess að mæla, hve mikið R-geislamagn eða geislaorhu líkaminn fær, hafa verið gerðir ýmiskonar mælar. Það R-geislamagn, sem þarf til þess að fram- kalla roða á húðinni, kallast R-skamtur (Dosis). Nákvæmasta áhaldið til þess að mæla R-geislamagnið er hinn svonefndi rafeindamœlir (Ionometer), en hann er dýr. Mest eru notaðar smáplötur (reagensplötur) eftir Sabouraud & Noiré, sem upplitast við R- geisla-skin. Þessu næst skýri jeg dálítið frá Röntgenlömpun- um. Þeir eru vanalega í laginu eins og 3. og 5. mynd sýnir. í 3. og 5. mynd er bakskautið (katóðan) merkt með K, andskautið (antíkatóðan) með AK, en for- skautið (anóðan) með A. Bakskautið er gert sem kúluhetta, er hefur brennpúnkt sinn (centrum) dálítið inn í eða framan við flöt andskautsins, sem liggur skáhallur við bak- skautsgeislunum og falla þeir því í sporbaugamynd- aðan flöt á andskautinu (sjá 4. mynd). Fjarlægðin milli bakskautsins og andskautsins er vanalega valin þannig, að styttri ás brennflatar- sporbaugsins verði hjer um bil 2—3 mm. Þeim mun minni, sem brennflötuiinn er, þeim mun skarpari og 4. mynd. harðari verða Röntgengeislar lampans, en því ákafar hitnar og andskautið og það svo mjög, að því hættir við að bráðna. Upphaílega notuðu menn í það platin, sem bráðnar við 1750° C, síðan irídium, sem biáðn- ar við 2000° C, þar á eftir tantal, sem bráðnar við 2300° C, en síðast wolfram, sem bráðnar við 3000° C. Með því má frainleiða svo harða eða gagnlýsandi geisla, að taka má myndir af líkamshlutum manns- ins á ^/íoo úr sekúndu. Auk þess neyta menn ýmsra ráða til að kæla andskautið, t. d. með vatni eða með því að festa wolframplötuna á stóran koparklump, er getur tekið mikinn hita í sig. 5. mynd. Hitni nú andskautið afskaplega mikið, þá leys- ast úr því leifar þeirra lofttegunda, sem eru í málm- inum og koma út í lampann. Við þetta minkar loft- þynnslan í lampanum og hann verður linari. Að vísu harðnar lampinn nokkuð aftur, um leið og and- skautið kólnar og sogar aftur í sig loft úr lampanum. Þetta kemur því aðeins fram, að andskautið hitni fram úr hófi, svo því liggi við að bráðna. Hins vegar harðna lamparnir við vanalega notkun. Kemur það af því, að við framleiðslu bakskautsgeislanna leysast upp smáagnir úr málmi bakskautsins, er þjóta gegn- um lampaholið og festast á glerumgjörðinni, en hitti þær nokkrar loftleifar á þeirri leið, þá bindast þær þeim og hafa þannig tekið þær herfangi. Við þetta vex loftþynnslan í lampanum (hin svonefnda sjálf- verkandi Ioftþynnsla), hann verður harðari, þarf hærri spennu og framleiðir betur gegnlýsandi geisla. Af

x

Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands
https://timarit.is/publication/404

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.