Afturelding - 01.06.1972, Blaðsíða 4

Afturelding - 01.06.1972, Blaðsíða 4
þörf fyrir fagnaðarerindið. Ég vænti þess að þið vitið, að Iþað er mjög 'hættulegt að vera kristinn í Kína. Um tuttugu ára skeið hefur það verið ákaf- ilega erfitt. Biblíur liafa vart verið sjáanlegar. Skarar fólks lifa í myrkrinu, utan að hafa hugmynd um að Ijósið sé til. Allur þessi fjöldi er á leið til eilífðarinnar, og það er enginn til að leiða þá. Þess vegna þökkum við Guði fyrir Otvarpskristniboðið. £g leyfi mér að segja það, ykkur til uppörvunar, að það er múgur manns sem hlustar og öðlast eilíft Jíf. Það má 'bæta því við, að um gervalt Kina er það óútrei'knanlegur fjöldi fóiks, sem hefur keypt sér útvarpstæki, svo að það skiptir mörgum, mörgum milljónum, sem hlustar. Mér er fuilijóst orðið að Guð sj'álfur verkar alveg sérstaklega gegn- um 'boðunina, sem gengur út. Ég á engin 'lýsingarorð yfir það, hvernig mér var innanbrjósts, já, hvílíkar tilfinningar helltust yfir mig, eftir að ég var komin til Hong Kong og var í fyrsta skipti þar við guðsþjónustu. Tiifinn- ingarnar byltust um í 'brjósti mér, þangað til ég hrast út í grát. Ég grét síðan aila guðsþjónust- una. Og hvers vegna? Vegna þess að það stóð allan tímann svo ljóst fyrir sálarsjónum mínum hvers virði freisið væri. Þetta óviðjafnaniega frelsi hefur verið rifið frá kínversku þjóðinni. Ifvernig mun svo fara fyrir henni? Nú er það ljóst fyrir mér: Af því Jesús hefur dáið fyrir mig, hvað get ég þá gert fyrir hann? Kall Guðs hefur h'ljómað til hjarta míns, að ég skuli þjóna honum, af því að hann 'leiddi mig út í frelsið. Ég trúi því sem útvarpsþulurinn ykkar segir, að tíminn, sem eftir er, sé mjög stuttur. Og mér er það ó'bærileg hugsun, ef ég ætti eftir að koma tómhent fram fyrir Guð! En Guð veit að ég er svo lítil og vei'k, ein af hans allra minnstu. Ég 'hugsa um ykkur í Otvarpskristnihoðinu: Þið haf- ið tækifæri til þess að opna hlið himinsins fyrir ótölulegum skara fólks í hinu víðáttumikla kín- verska ríki. Ég skal alltaf hiðja fyrir ykkur, að Guð fylli allar þarfir ykkar. Áreiðanlega er Ot- varpskristniboðið þýðingarmesta kristniboðið á okkar dögum. Ég vona að þið eigið marga fyrir- biðjendur. Að endingu leyfið mér að segja þetta: í gegnum Otvarpskristniboðið verðum við að hrópa til ger- vallrar veraldar, hvílíkir stórkostlegir möguleikar séu að ná til Kína, sem annars er harðlokað, gegn- um þetta tæki. Já, ég óska 'að rödd Otvarpskristni- hoðsins megi fylla alla jörðina, að aliar kynkvíslir, tungur og lýðir fái að heyra fagnaðarerindið. Ó, að binn Almáttugi megi vera með ykkur alla daga! Hans er mátturinn og 'dýrðin! Biðjið fyrir mér að ég megi fá náð tii þess að fylgja kalli Guðs. 'Hong Kong, 10. apríl 1972. Ein af Iþeim minnstu. Teklð úr ,,Troens Bevls". Ath. Þegar maður les þessa 'brennandi játningu þessarar ungu, 'kínversku stúlku, er engu ilíkara en hréf hennar leggi betur út en nokkur prédikari gæti gert, orðin í Oþb. 14, 6—7: „Og ég sá annan engil fijúga um miðbimininn og hélt 'hann á eilíf- um fagnaðarhoðskap, til að 'boða 'þeim, sem á jörðunni búa, og séihverri þjóð og kynkvísl og tungu og lýð, og sagði hárri röddu: Óttist Guð og gefið honum dýrðina, því að komin er stund dóms hans, og tiibiðjið þann, sem gjört hefur him- ininn og jörðina og 'hafið og uppsprettur vatn- anna“. Hver er þessi engill, sem flýgur um miðhimin- inn? Það er engill fagnaðarerindisins á vængjum ljósva'kans. Þetta er unga stúlkan frá Hong ICong að leggja út fyrir okkur með bréfi sínu, þótt hún sennilega þekki ekki þessa ritningargrein, er hér ihefur verið vitnað til. Á. E. Aðeins - ASeins Aðeins einn sólargeisli! En samt lýsti liann upp auðnina og gladdi margt sorgþrungið hjarta. Aðeins eitt vindkast! En það megnaði þó að svala heitu enni og blása nýju lífi í þreytta limi. Aðeins eitt súrt svip'brigði! En það varð þó til þess að kæla hjartað og fylla augað með tárum. Aðeins óvingjarnlegt orð! En það vakti þó óánægju og ibeiskju, svo að það gerði starf dagsins þungt og erfitt. 4

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.