Afturelding - 01.06.1972, Blaðsíða 34
Svip-
myndir
frá
Filipps-
eyjum
I kristilegu tímariti (Philippine News), sem o'kk-
ur var sent nýlega, var Iþessi mynd af söngkór ungs
fól'ks á Filippseyjum. Með myndinni fyilgdi texti,
sem hljóðaði á þessa leið:
„Framgangur Hvítasunnuvakningarinnar hefur
'borið þann árangur á Filippseyjum, að síðastlið-
inn janúar var samningur undirritaður við sjón-
varpsstööina „Elizalde’s Metropolitan Broadcast-
ing Company“ að endurvarpa fagnaðarerindinu í
prédikun og söng eina klst. í viku allt árið um kring.
Myndin er tekin við eina guðsþjónustuna í
kirkju Hvítasunnusafnaðarins í „Quezon City“ á
Fiilippseyjum, sem er síðan endurvarpað um aðra
sjónvarpsstöð í Ameríku.
Okkur þótti bæði mynd og texti athyglisvert, og
sýndist unga fólkið valda verkefninu vel. Þess vegna
tókum við bvorttveggja upp í Aftureldingu, svona
á leið okkar um ilönd Austur-Asíu, sbr. fyrsta
greinin og fleiri greinar í þessu tölublaði.
Vin§æll ttalmnr
Á æskulýðssamkomunum í sumar, er baldnar
voru í tjaldinu í Laugardainum og víðar, voru það
vissir sálmar, sem voru sungnir meir en aðrir.
Einkum var það sálmur, orklur af Aril Edvardsen,
sem kom ákaflega mikið fram, og gekk oft eins og
rauður þráður í gegnum æskulýðssamkomurnar.
Það leyndi sér ekki að texti og lag hreif fólkið
samkomu eftir samkomu. Þegar sálmurinn var
sunginn af tendruðum hópi æskulýðs, flæddu áhrif-
in út á meðai áheyrendanna, svo að það lét merki
eftir sig. Það sýndu samkomurnar.
Einhver kom til okkar, sem varð fyrir þessum
áhrifum af sálminum í sumar, og spurði, hvort
okkur sýndist ekki að birta sálminn í Aftureld-
ingu og þá með nótum, svo að fleiri gætu notið
sálms og lags. Þetta viidum við vissulega gera, og
hér höfum við svo nóturnar og sálminn á næstu síðu.
34