Afturelding - 01.06.1972, Page 20
J A N MALM:
Hann sér með auga^ sem hann hefur ekki.
ZJndur, sem gerir lœknana forviða
I samibandi við heimsókn „Full Gospel Mens“
til Svíþjóðar befur fréttán um undraverða lækn-
ingu á Dave Pelletier yngri, vakið mjög mikla at-
hygli. Dave er níu ára að aidri og er lifandi sönn-
un fyrir undursamlegum mætti Guðs. Gegnum
þetta mikla undraverk hafa margir unnizt fyrir
Krist. Um alian heim eru læknar furðu lostnir
yfir því, að Dave sér með auga, sem hann raun-
-verulega hefur ekki. í slysi missti hann vinstra
augað. En á samkomum sýnir hann að hann sér
með tómri augnatóftinni, eða það sem „Expressen“
skrifar: „'Hann sér með plastauga“.
Undirritaður, sem túlkaði föður Daves í sam-
komu í Saron í Hallsberg, sannaði sjón drengsins
fyrir fóiki í fullsetinni kirkju. Hann bað síðan
föðurinn, að endurtaka fyrir „Hemmets Ván“ það
sem skeð hafði:
Þann 4. júlí 1968, þjóðhátíðardegi Bandaríkj-
anna, skaðaði Dave vinstra auga sitt.
Hann var lagður inn á sjúkrahús. Við báðum
einlæglega Guð að bjarga lífi drengsins, en eftir
þrjár aðgerðir og uppskurði, ákváðu læknarnir að
taka augað úr honum. Þetta skeði í ágústmánuði
sama ár. Guð taiaði til mín og gaf mér fullvissu
um að Dave mundi fá sjón, jafnvel þótt augað væri
tekið úr ihonum. Hægra augað var algerlega heil-
hrigt. Jafnvöl þótt konu minni fyndist trú mín
vera yfirspennt tilfinning, hélt ég áfram að trúa á
kraftaverk.
Undrið skeði 6. júlí, 1971. Klúkkan tíu um
kvöldið, þrem árum eftir að augað hafði verið
tekið burt. Dave lá í rúmi sínu vakandi. Það voru
nokkrir vinir staddir hjá okkur á heimilinu. Skyndi-
lega kom Dave hlaupandi niður frá annarri hæð
til okkar, sem vorum í dagstofunni og hrópar:
„Mamma, pabbi, ég get séð með' slæma auganu.“
Ég vissi á stundinni, að Guð hafði svarað bæn
minni og opinberað það, sem hann hafði lofað
mér þrem árum áður.
Sjálfur þurft'i ég ekki að reyna sjón hans svo
viss var ég, en vegna gesta okkar, sannreyndum
við sjónina. Hann gat séð ljósið frá þrem lömp-
um í heriberginu og benti á greiðu, sem ég hélt
fyrir framan eitt ljósið. Við lofuðum Guð fyrir
þetta dásamlega undur! — Mér fannst ég fá gæsa-
húð um allan líkamann. Ég varð kaldur og heitur
á víxl. Allt sem ég gat sagt var: „Þakka þér herra!
Þakka þér, Jesús! Þetta er dagurinn, sem þú lof-
aðir mér fyrir þrem árum síðan.
Læknisfræðilegar skýringar eru engar, og
margir sérfræðingar í augnlækningum hafa rann-
sakað hina furðulegu sjón Daves, og finna engar
iæknis- eða líffræðilegar skýringar á þessu fyrir-
bæri. Pelletier lioldur því fram að þetta undur sé
til þess að upphefja nafn Jesú og að fleiri leiti
frélsunar gegnum það. Jesús gerði ekki öll krafta-
verkin vegna kraftaverkanna sjálfra, heldur til
þess að mennirnir, vegna þeirra, gæfu meiri gaum
að fagnaðarerindinu, segir Pelletier og vitnar
gjarnan í marga ritningarstaði, og meðal annars
þennan: „En til þess að þér vitið að mannssonur-
inn hefur vald á jörðu til að fyrirgefa syndir —
þá sagði hann við lama manninn: — Ég segi þér,
statt upp tak rekkju þína og far heim til þín.“
Frá Japan kom einn frægasti au'gnasérfræðing-
ur til að rannsaka Dave. Ásamt öðrum séifræðing-
um sönnuðum við undrið á Dave i sjónvarpi frammi
fyrir milljónum áhorfenda. Ég notaði auðvitað
tækifærið, að vitna um Jesúm sem frelsara, það
geri ég ætíð. Það gerði Pelletier einnig í Hallsberg.
Það var kristalstær og kröftugur vitnisburður.
Menn frelsast líka vegna þessa undurs og vegna
vitnisburðarins, sem .vekur iþá umhugsun, að þarf-
ir mannsins vill Jesús sjá um. Meðal annars skeði
20