Afturelding - 01.06.1972, Síða 50
Biblíuskóli
Emanuel Minos
4. nóvember er dr. Emanuel Minos ásamt konu
sinni Áse væntanlegur til Reykjavíkur. Munu þau
hjón 'halda samkomur í Fíladelfíu hvert kvöld frá
þeim degi og til 12. nóveunber. Auk þess verða
Biblíulestrar að deginum, sem nánar verða aug-
lýstir. Dr. Emanuel Minos þarf ekki að kynna
fyrir íslendingum, svo eru í minni samkomurnar
er hann hafði í Fríkirkjunni fyrir nálega 20 árum
sagði: „Ég er nr. 175. Minnist þér jólakvöldsins
1943?“
Þá varð hann og kona hans skelfingu lostin.“
Og nú eruð þér kominn til þess að hefna yðar?“
spurði hann. „Já,“ svaraði ég og opnaði pakka, sem
ég hafði með mér. 1 pakkanum var stór brauðkaka.
Ég bað konu hans að hita okkur kaffi og svo drukk-
um við og neyttum brauðsins öll fjögur við sama
borð.“
Maðurinn hyrjaði að gráta og bað um fyrirgefn-
ingu. Ég sagði, að ég vildi fyrirgefa honum vegna
Jesú Krists. Einu ári seinna frelsuðust hjónin bæði
og eru í dag kostgæfnir lærisveinar Krists.
Það r-íkti alger og heilög þögn í samkomusalnum
í Rómaborg, meðan öldungurinn vitnaði. Við
fundum það öll að Andi Guðs var nálægur og þeg-
ar það er, iþá er þögnin heilög — Guð talar, og
hann hefur boðskap til okkar allra.
(Korsets Budskap).
og drógu að sér þúsundir manna, þann hálfan mán-
uð er hann dvaldi Iþá hér í borg.
Síðan hefur ganga hans verið óslitin sigurganga
á vegum fagnaðarerindisins um öll Norðurlönd,
England og Bandaríkin. Dr. Minos er fæddur í
Kongo og var móðir hans þarlend, en faðirinn
Grikki. Dauðvona var hann tekinn til fósturs af
norskum kristniboðshjónum, Oddbjörgu og Gunn-
eríusi Tollefesen. Þegar í bernsku komu óvenju-
legir hæfileikar fram hjá Emanuel og var hann
farinn að prédika við mikla athygli 6—7 ára
gamall.
Atlhygli nær Ihann ennþá og nú í hvað víðustum
sjóndeildarhring er um getur á æviferli hans.
Tveggja ára frestur og svo einlæg vinátta
við forráðamenn Fíladelfíu urðu þess valdandi að
úr heimsókn þessari verður nú. Athygli er vakin
á þessu vegna vina utan af landi sem vildu vera
með í samkomum þessum. I sömu viku og Minos
kveður, er trúboði Gunnar Sameland væntanlegur
til Reykjavíkur og tekur þátt í Biblíuskóla og sam-
komum um tveggja vikna skeið, sem nánar verður
auglýst.
Þannig mun nær allur nóvember verða þétt-
setinn af samkomum tvisvar á dag. Þeir sem vilja
njóta fyrirgreiðslu safnaðarins þurfa að tilkynna
komu sína sem aflra fyrst og skrifa í pósthólf
5135. Verið velkomin í Jesú nafni.
Einar J. Gíslason.