Afturelding - 01.12.1987, Síða 28
Floyd McClung:
Að leiða menn
til Krists
GUÐ ELSKAR OKKUR.
Við erum dýrmæt í augum hans,
við erum einhvers virði. Við er-
um honum mikilvæg. Hann ber
virðingu fyrir okkur, hann kem-
ur til okkar fallinna og segir: „Eg
elska þig.“ Mörgeigum við erfitt
með að skilja þetta. Við erum
svo full sektarkenndar og ótta að
okkur finnst erfitt að trúa að
Guði geti í raun og veru þótt
vænt um okkur.
Oft rennur upp ljós fyrir okk-
ur þegar við förum að skilja að
Jesús, sem Guð sendi sem tján-
ingu ástar sinnar, skilur sárs-
auka og átök okkar mannanna.
Hann kom, hann yfirgaf
heimkynni sín; hann yfirgaf tign-
ina, dýrðina og fegurðina; hann
yfirgaf náið samfélag við föður
sinn. Hann afsalaði sér öllum
guðlegum réttindum sínum eða
eins og einn sagði — „Hann
lagði guðleg forréttindi sín til
hliðar og tók á sig þjónsmynd."
Eg trúi því að við finnum
lausn fyrir okkur sjálf og verðum
fær um að leiða aðra til Krists,
þegar við nálgumst fólk á sama
hátt og Jesús gerði. Það getum
við gert á þrjá vegu.
Að samlagast
I fyrsta lagi verðum við að
læra að sitja við sama borð og
fólkið. Drottinn talaði til Esekí-
el spámanns, (Esekíel 3:15) og
skipaði honum að fara og setjast
þar sem fólkið sat. Á sama hátt
kom Jesús til okkar. Hann talaði
Aramísku og Hebresku. Jarð-
neskur faðir hans dó þegar hann
var unglingur og móðir hans
hafði vafasamt mannorð vegna
þess á hvern hátt Jesús var get-
inn.
Jesús fæddist í fjárhúsi, í jötu.
Hann var vafinn reifum, svo þétt
vafinn að hann gat ekki hreyft
sig. Hugsið ykkur hvað skapari
alheimsins hefur verið viðkvæm-
ur, vafinn svo hann gat ekki
hreyft sig. Hann kom sent mað-
ur í veikleika, auðmýkt og sem
þjónn. Við erum ekki of vond
fyrir hann.
Jesús sagði ekki við vini sína:
„Komið upp í kirkjuna mína í
himninum og þá fáið þið kannski
að heyra gleðitíðindin." Hann
kom til þeirra í hversdagslegum
kringumstæðum lífs þeirra; þar
sem þeir unnu, þar sem þeir
borðuðu, þar sem þeir héldu há-
tíð saman.