Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1933, Síða 26
GANGUR TUNGL OG SÓLAR A ÍSLANDI.
í þriðja dálki hvers mánaðar, sem heíir yíirskriftina »T í h« (tungl
i liásuðri), og i töblunni á blaðsíðu (17) er sýni, hvað klukkan er
eftir íslenzkura meðaltíma, þegar tunglið og sólin eru í liásuðri
i Reykjavik. En vilji menn vita, livað klukkan sé eftlr islenzkum
meðaltima, þegar tunglið eða sólin eru i hásuðri á öðrum stöðuin
á fslandi, þá verða menn að gera svo nefnda »lengdarleiðréttingu«
á Reykjavikurtölunni. Verður liún — 4 minútur fyrir hvert lengdar-
stig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík, og + 4 mín. fyrir
hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavik. T. d. er
Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar cn Reykjavik; lengdar-
leiðréttingin þar er þá — 24 min. og 5. júlí er sól i liásuðri frá
Raufarhöfn þess vegna kl. 12 08. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiða-
firði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavik og lengdarleið-
réttingin er þar 4 mín. 1. febrúar er þvi tungl i hásuðri frá Flatey
kl. 1 46 f. m. (1 42 + 0 04 = 1 46).
Sólargangurinn i Reykjavik er tilgreindur i almanakinu hvern
miðvikudag. Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er
miðja sólar sést koma upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til
sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sést fara nlður fyrir sjóndeildarhring-
inn. Til þess að finna sólarganginn annarstaðar á landinu, þarf að
gera Iengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama hátt sem við sól
eða tungl í hásuðri, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi að elns eRir breiddarstigi staðarins,
heldur er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavík. 1
eftirfarandi töblu er sýnd breiddarloiðrétting fyrir hvert hálft stig,
norðar og sunnar en Reykjavík, þegar sólargangurinn i Rvík stendur
á heilli stundu. Leiðréttingin er pósítíf (+), þegar sólargangurinn
lengist vegna hennar, en negatif (—), þegar sólargangurinn styttist.
Breiddarleiðrétting töblunnar er þvi lögð við tíma sólarlagsins í Rvik,
en dregin frá sólaruppkomutímanum. Sé brelddarleiðréttingin negatif
(—), verður að taka forteiknið til grelna.
Dæmi: Sólargangur 2. maí á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar
og 2'/« stigi norðar en Rvik.
Penna dag er sólargangur i Reykjavík 16 st. 48 mín. Breiddar-
leiðrétting töblunnar fyrir 21/« stlg norður og sólargang 16 st. er + 16
min. en fyrir 17 st. + 23 min. og fyrir 16 st. 48 min. verður breiddar-
leiðréttingin þvi + 22 mín. Lengdarleiðréttingin er — 24 min.
í Reykjavik .... su. 4 02 sl. 8 50
Breiddarleiðrétting . — 22 +22
Lengdarleiðrétting .____— 24_______— 24
ÁRaufarhöfn .... su. 3 16 sl. 8 48
Annað dæmi: Sólargangur 14. nóv. í Flatey á Breiðailrði, sem er
1 stigi vestar og l‘/« stigi norðar en Rvik. Sólargangur i Reykjavik
er 6 st. 35 min.
í Reykjavík.....su. 8 54 sl. 3 29
Breiddarleiðrétting . +12 — 12
Lengdarleiðrétting . +4 +4
í Flatey ....
. . su. 9 10 sl. 3 21