Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1933, Síða 28
IJtítl-ÍÍttllI'
í\r lötjum nr. S5, i!7. j (\nl lom, um einUíiloyfl baiicTa
básböla íslands til útcáfu almanaks,
1. gr.
Háskóli íslands skal hafa einkarétt til þess að gefa út og selja
eða afhenda með öðrum hætti almanök og dagatöl á íslandi.
5. gr.
Pað er brot á einkarétti háskólans samkvæmt 1. gr., ef maðuri
1. Flytur inn í landið til sölu eða afhendingar með öðrum hætti
önnur almanök eða dagatöl en þau, er i 1. gr. segir.
2. Selur hér i landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eða
dagatöi en þau, sem einkaréttur háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða með öðrum hætti almanök eða
dagatöl eða kafla úr þeim.
4. Prentar upp eða fjölritar almanök háskólans eða dagatöl eða kafla
úr þeim tii þess að selja eða láta af hendi með öðrum hætti.
7. gr.
Fyrir brot samkvæmt 5. gr. skal refsa með sektum frá 100—2000
kr., ef það er framlð af ásetningi eða gáleysi, enda liggi ekki þyngrl
refsing við að öðrum lögum.
Sektir má taka fjárnámi.
Leggja skal þegar hald á rit þau, sem ólöglega hafa verið flutt
til landsins, gefln hér út eða seld eða áf hendi látin samkvæmt 5. gr.,
og skal siðan gera þau upptæk með dómi.
Skaðabætur skal hver sá greiða, sem sekur verður eftir 5. gr.
Miða skal bælur, ef því verður við komið, við samanlagt söluverð
ólöglegra seldra eða afhentra eintaka að frádregnum hæfllegum sölu-
launum. Ella skal ákveða bætur efUr atvikum.
Hið íslenzka þjóðvinafélag heflr með samningi keypt einkaleyfl
þetta í ár (1934), og nær það til allra almanaka i bókarformi. Verð
livers almanaks er samkvæmt samningnum sett á 30 aura. Peir, sem
kaupa 50 eintök eða fleiri i senn, fá i afslátt 20 af hundraði.
Áriö 1935 ber páskana upp á 21, april.
(24)