Muninn

Árgangur

Muninn - 01.03.1964, Blaðsíða 8

Muninn - 01.03.1964, Blaðsíða 8
að þessi gamli maður var skálduð persóna en ekki raunverulegur — og hef ég grun um að Iiirgir Ásgeirsson og Helga Jónsdótt- ir séu í hópi meiri leikaraefna sem stigið hafa á svið hér í skóla. Helga Jónsdóttir í hlutverki Alice, sýndi góðan leik og hefur betri framsögn en venjulegt er um leikend- ur í M. A. Það væri of langt mál að ræða leik hvers og eins, þegar leikendur eru svona margir, og vel ég þann kostinn að tala fremur um þá, sem mér virðast búa yf- ir sæmilegum hæfileikum. Fyrst ber þá að telja Einar Haraldsson (Paul Sycamore), sem sýndi viðfelldinn leik og tókst að gæða hinn rólynda heimilisföður skemmtilegum persónuleika. Guðríður Þórhallsdóttir (Essie) lék mjög sæmilega og var lifandi á sviðinu. Jón Hilmar Jónsson (Ed) komst einhvern veginn afturábak inn í sína rullu svo að persónan virkaði eins og marsbúi en lagaðist eftir því sem á leið. Vilhjálmur Vilhjálmsson (Tony Kirby) náði sér eink- um á strik undir lok leikritsins og sama er að segja um Jóhann Heiður Jóhannsson (Antony Kirby), sem hætti þó dálítið til að ýkja. Leiktjöld voru ósmekkleg og fremur klúðursleg. Flutningur leikritsins var lé- legri en efni standa til. Takið eftir því, að leikfélagið getur betur. Það er ekki hægt að ásaka menn fyrir skort á hæfileikum, en þegar hæfileikar eru fyrir hendi er leiðin- legt að nýta þá ekki betur. Tíminn til æf- inga var stuttur og andinn innan leikfélags- ins ekki beinlínis eins og telja verður æski- legt. Leiksviðið, sem félagið hefur til af- nota, er fremur lítið og illa útbúið, og þetta leikrit var ekki heppilegt fyrir svona lítið leiksvið. Til þess eru persónur of margar, enda gætti þess mjög að sum atriði yrðu ruglingsleg. Leikfélagið ætti að taka tillit til þess framvegis og væri ekkert skynsam- legra en að byrja strax að hugsa til næsta viðfangsefnis. Mætti þá lélagið vera minn- ugt þess, að næsta ár er líklegt að hæfileika- menn verði óvenju margir: Birgir, Helga, Einar, Guðríður, Arnar Einarsson, sem get- ur vel gert, og fleiri. Og gaman væri, ef því tækist að velja verðugt viðfangsefni, þar sem hæfileikamenn fengju að njóta sín, og gætu ef til vill lagað svolítið til í félaginu. En ekki er nóg að hugsa til næsta leikrits, leikstjórinn er ekki síður mikilvægur, auk heldur mætti ákveða viðfangsefnið í sam- ráði við hann. Megi svo leikfélag M. A. lengi lifa. (Hér á að koma ferfalt húrra.) Brynjar Viborg. Brandarar Enska í VI. b. Friðrik Sigfússon: Þegar salemi eru upptekin, stendur á þeim „occupied,“ en hvað eru þau, þegar þau eru ekki„occupied“? Arnmundur: Biluð. Þytur mikill heyrist fyrir utan stofu 6. s. Óskar: Síeig nú Þingeyingurinn á nagla. Enska VI. a. Wliat are all these kissings worth, if thou kiss not me? Margrét þýðir: Hvers virði eru allir þessir kossar, (hún lítur upp og mænir á Friðrik S.), ef þú kyssir mig ekki? Friðrik Sigfússon: Jahá Margrét, að vísu mundum við nota hjálparsögn! í Sögu VI. a. Aðalsteinn: Hann var einn mesti ræðusnilling- ur þeirra tíma, og hafði æft sig í því frá alda öðli! Náttúrufræði VI. a. Steindór: Æi, greyin mín þegiði nú, eyrun á mér eru full af kvefi! Rödd úr bekknum: Snýttu þeim. 64 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.