Muninn

Árgangur

Muninn - 01.03.1964, Blaðsíða 27

Muninn - 01.03.1964, Blaðsíða 27
fyllilega verðskuldaður. — Liðið skipa þess- ir menn: Birgir Asgeirsson, Jakob Hafstein, Kjartan Guðjónsson, Arnar Einarsson og Björn Hólmgeirsson. Fjögur efstu lið: IV. bekkur 12 stig, III. a-lið 10 stig, VI. bekk- ur 8 stig, V. 6 stig. Nokkrir piltar héðan úr M. A. hafa sótt æfingar í frjálsum íþróttum í íþróttahúsi bæjarins í vetur. 22. janúar var haldið þar innanhússmót í langstökki. Þar átti M. A. 3 fyrstu menn. Sigurvegari var Guðmund- ur Pétursson, stökk 3.10 m, annar Reynir Unnsteinsson 3.06 m, þriðji Bárður Guð- mundsson 3.01 m. Þann 29. janúar var svo keppt í hástökki og þrístökki. Þar sigraði Kjartan glæsilega, stökk 1.86 m, Bárður Guðmundsson varð annar með 1.76 m, Haukur Ingibergsson þriðji með 1.72 m. Bárður sigraði í þrístökki, stökk 9.03 m. Þá er vert að geta þess, að þeir Guðmundur Pétursson og Reynir Unnsteinsson fóru suður á land fyrir skömmu. Guðmundur á drengjameistaramót, en Reynir á ungl- ingameistaramót í frjálsum íþrótum. Þeir stóðu sig báðir með prýði. Guðmundur varð drengjameistari í langstökki, stökk 3.02 m, en Reynir varð no. 2 í hástökki, langstökki og þrístökki. Segir ekki meir af íþróttum. St. Þ. — LausavtsnaJjáttur Framhald af bls. 81. Nú er hreyft við æði viðkvæmu máli, og Ingi Sigurðsson kveður: Ef þú okkur færir frí í fyrsta tíma, myndu allir gxáta af gleði. Gaman væri, ef það skeði. En skólameistari er ekki tilleiðanlegur: Eitthvað skilið áttu fyrir óðinn sæta, en ekki vil ég ykkur græta. Kemur þá urghljóð í hornið: Kennaranna kyndugt lið kvaðir á oss setur. Víst má telja vonlítið það viti oss nokkuð betur. Er nú fríið sótt af kappi, og fer svo að lokum, að skólameistari gefst upp fyrir of- ureflinu: Hættið nú að mjálma og mala. Mér er ekki um að gefa frí. En það er ekki um það að tala. Þið hafið unnið fyrir því. Gífurleg fagnaðarlæti nemenda kæfa nær því rödd Friðriks, er hann kveður að lok- um: Hagyrðinga hitti ég slynga hýru á þingi hér. Lifnar kynngi Laugvetninga, ljóðin syngjum vér. Ekki verður meira kveðið að sinni. M U N I N N Útgefandi: Málfundafélagið Huginn Ritstjóri: Friðrik Guðni Þórleifsson Ritnefnd: Bergþóra Gísladóttir Páll Skúlason Gunnar Stefánsson Bjöm Þórleifsson Auglýsingar: Jóhannes Pálmason Ábyrgðamaður: Friðrik Þorvaldsson Prentverk Odds Bjömssonar hf. MUNINN 83

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.