Muninn

Árgangur

Muninn - 01.03.1964, Blaðsíða 26

Muninn - 01.03.1964, Blaðsíða 26
Skömmu fyrir jól hófst keppni í blaki karla. Þar var að venju keppt í tveim riðl- um, og lauk þeim fyrri í desember. Sigur- vegarar urðu, engum á óvænt, III c. Sigr- uðu þeir í sama riðli fyrir ári. I bæði skipt- in með yfirburðum. Vakti það mikið umtal og nokkra gremju hjá mörgum, er lið VI. bekkjar mætti til leiks og í Ijós kom, að liðið var skipað mönnum bæði úr stærðfræði og máladeild. í mótum þessum hefur haldizt sú venja, að keppnin um bikarinn hefur verið rnilli mála- og stærðfræðideilda. En það er aðeins venja. Einu lögin, sem skráð eru urn blak hér í skóla, fjalla eingöngu um leikreglur. Ekkert stendur um hvernig lið skulu skip- uð, því miður. Lið VI. bekkjar er því á engan hátt ólöglegt. Vonandi er, að bót verði ráðin á þessu lagaleysi í nánustu framtíð. Um miðjan janúar kom svo að því, að úrslitaleikur var háður. Húsfylli var og margt stórmenna meðal áhorfenda, svo sem skólameistari og formaður í. M. A. Eins og spáð hafði verið, kepptu þarna til úrslita III. c og VI. bekkur. Bæði lið voru jöfn að stigum, hvort með 20 stig. Bæði höfðu allt að vinna en engu að tapa. VI. bekkur með sinn síðasta leik og úr liði III. bekkjar hverfa hinir atorkusömu tvíburar, sem gera liðið að því, sem það er. Eru þeir á förum til Reykjavíkur og er mikil eftirsjá í þeim. III. bekkur vann fyrstu hrinuna, en þá tók VI. bekkur líka forustuna og vann hinar tvær og þar með bikarinn. Lið VI. bekkjar skipa: Bárður Guðmundsson, Steinar Þor- steinsson, Guðmundur Oddsson, Óskar Jónsson, Pálmi Jóhannesson og Halldór Kristjánsson. Ejögur efstu liðin urðu þessi: VI. bekkur a-Iið með 22 stig, III. c með 21 stig, IV. s.b. með 18 stig og V. s.b. með 15 stig. Ovenju mikill áhugi hefur verið á blaki meðal kvenfólks og er það vel. Hraðmót í körfubolta var haldið í des- ember. Sigraði þar a-lið IV. bekkjar. Frem- ur lítill áhugi hefur verið á körfubolta í skólanum í vetur, og má þar ef til vill kenna um þjálfaraleysi. Einnig liáir það mjög, að mikill skortur er á dómurum. Skólamót í körfubolta stendur nú yfir. Þá er komið að handboltanum. Laugar- daginn þann 14. desember fóru 9 hand- boltamenn til Reykjavíkur í boði mennta- skólans þar. Stóð til, að spilað yrði að Há- logalandi á þriðjudag. Sem nokkurs konar undanfari fyrir aðal leikinn var spilaður aukaleikur við háskólastúdenta í íjrróttasal Háskólans á sunnudag, og þar sigruðu menntskælingar með 10 mörkum eða 39:29. Að Hálogalandi sigruðu svo M.R.-ingar 19:13 eftir fremur lélegan leik að hálfu okkar manna. Þá hefur skólaliðið keppt tvisvar við úrval frá K. A. og sigraði í bæði skiptin. Um miðjan febrúar héldu 2. og 3. flokkur í keppnisför til Húsavíkur. Úrslit urðu, að 3. flokkur tapaði sínum leik 20:25, en 2. flokkur vann sinn leik með sömu markatölu eða 25:20. — Nýlega er lokið skólamóti í handbolta. 7 lið voru skráð til keppni. Þykir mörgum sem sumir leikir í móti þessu hafi verið nokkuð harkalegir, og verður að skrifa það á reikning dómara. Laugardaginn 1. febrúar var úrslitaleikur háður, og var hann milli III. a-liðs og a-liðs IV. bekkjar. Dómari var formaður í. M. A. Ingvar Björnsson. IV. bekkur vann þarna yfirburðasigur 30:17. í hálfleik var staðan 7:9 fyrir IV. bekk. Lið þetta var áberandi jafn bezta liðið í mótinu, og er sigurinn 82 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.