Muninn

Árgangur

Muninn - 01.03.1964, Blaðsíða 16

Muninn - 01.03.1964, Blaðsíða 16
Orar Ég sit hér í innsta herbergi til vinstri á geðveikrahæli borgarinnar, og í von um að einhver vilji lesa sögu mína, hripa ég nið- ur þessar línur. Ef þið haldið að ég sé vitlaus, segi ég ykkur í trúnaði, að svo er ekki. Já, það er meira að segja mjög sennilegt að Jrið álítið mig brjálaðan, en ég fullvissa ykkur um að {DÍð hafið á röngu að standa, því að ég er aðeins eitt af mýmörgum fórnarlömbum ímyndunaraflsins og hins sálræna næm- leika, sem orsaka oft á tíðum óskaplegt hug- myndaflug og hugaróra af versta tagi. Það er annars bezt að ég segi ykkur sögu mína. Segi ykkur hvernig þessi sjúkleiki ásamt meðfæddum taugaslappleika gerðu mig að andlegu rekaldi á skömmum tíma. — Frá Jrví að ég fyrst man eftir mér, átti ég aldrei draumlausa nótt. En Jrað sem verra var, allir mínir draumar voru meira og minna óþægilegir, já, svo andstyggileg- ir, að ég gekk aldrei til náða án þess að kvíða fyrir draumum mínum. Að sjálf- sögðu voru draumar mínir í samræmi við aldur minn og þroska, og breyttust með vexti mínum og framförum. í bernsku dreymdi mig t. d. alls konar skrímsl og ófreskjur, sem ýrnist eltu mig, tróðu á mér, eða jafnvel átu mig með húð og hári. Einnig bar olt við að mig dreymdi að ég væri að kremjast undir einhverju vélar- bákni, einhvers konar götuvaltara eða ámóta verkfæri, eða að ég væri lagður á bál og brenndur, eða étinn af mannætum, eða jarðaður lifandi, eða steiktur í ofni, eða mér væri troðið í gegnum skráargat, og jafnvel dreymdi mig að verið væri að kæfa mig í baðkeri, en þann viðbjóð dreymdi mig oft. Ekki get ég sagt, að draumar mínir hafi batnað með aldrinum, heldur urðu þeir allt öðru vísi og reyndu meir á taug- arnar. Svo ég nefni eitthvað, dreymdi mig heila nótt að ég væri að telja gamla blýanta, eða ég væri að veggfóðra með frímerkjum, eða tína ber með boxhönzkum, eða jafnvel að ég væri látinn borða steikta vinnuvettlinga. Ekki man ég að nefna fleira af draumum mínum svona fljótt á litið, enda gerist þess ekki þörf, þar sem ég álít þetta litla sýnis- horn hafa veitt ykkur næga innsýn í draumaheim minn. Með öðrum orðum, Jrið hafið séð, hvílíkur píslarvottur draurna minna ég var, og getið ímyndað ykkur líð- an rnína, eða öllu heldur þjáningar. Hversu djöfullegir sem draumar mínir samt sem áður voru, Jrótti mér þó ekkert hryllilegra né meira geðshrærandi en dreyma sama drauminn tvær eða fleiri næt- ur í röð. Ég er jafnvel eins sannfærður um að tilbreytnin í draumum mínum var það eina, sem bjargaði mér frá sturlun, eins og Jrað var tilbreytingarleysið, sem eyðilagði mig fullkomlega, Jregar þar að kom. Til allrar hamingju dreymdi mig yfir- leitt ekki sama drauminn tvívegis, en ef hann var óvenju ferlegur, kom Jrað þó fyr- ir að mig dreymdi hann aftur og aftur. Þegar svo bar við, var ég ekki mönnum sinnandi, slík var vanlíðan mín oa: tauaa- spenna. Þar sem þetta líf mitt leið nokkurn veg- inn stóratburðalaust, ætla ég að stikla á stóru, og hefja frásögn mína á nóttinni sem mig dreymdi náttbuxurnar. Já, þið hlæið eflaust, en það er svo einkennilegt, að mitt í öllum mínum ógeðslegu og hryllilegu draumum dreymdi mig allt í einu náttbux- ur eina nóttina. Það hlýtur að vera hámark vitleysunnar 72 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.