Muninn

Árgangur

Muninn - 01.03.1964, Síða 10

Muninn - 01.03.1964, Síða 10
félag enn ekki öðlazt allan þann þroska, sém svo mjög er þörf á, til þess að auðugt menningarlíf þróist. Og það er fjarstæðu- kennt að sætta sig við þjóðlífið, eins og það er. Þvílíkt mundi vera rammasta hnign- un. En hitt er sömuleiðis jafn fjarstæðu- kennt að ímynda sér, að áiangur náist nreð galgopaskap, — t. d. lýsa yfir þeirri skoðun, að fullkomið hnignunarskeið ríki, meinið sé allt að því banvænt — og varpa síðan allri sökinni á stjórnarvöldin. Gallanna í þjóðlífinu er að leita hjá mér og hjá þér. Við kveðum upp einum of margan sleggjudóminn í stað þess að leita að grundvellinum með raunhæfri skynsemi og draga af hófsamar ályktanir eftir eigin höfði. — Það er auðvelt að bindast ákveðn- um kenningum eða skoðunum og hnika ekki út af þeim, og jafnvel getur slíkt stund- um verið afar hagkvæmt fyrir efnahags- hliðina. Hitt er erfiðara að breyta sam- kvæmt sannfæringu sinni, eða réttara sagt, að auðnast að skapa og bera sína eigin sann- færingu, en fleygja henni ekki frá sér, jafn- skjótt og hallar upp í mót. Hver, sem svo gerir, treður á samvizku sinni, en samvizk- an er, að ég ætla, hið dýrmætasta í vitund okkar. Með því að tileinka okkur og gera það sem við skynjum undir niðri að brýtur í bága við hana, erurn við í hildarleik við sjálf okkur og vefjum okkur í ginningar- net, þar sem við að síðustu tökum blekking- una sem sannleika, og glötum því, sem gæti veitt okkur sanna lífsgleði, og ánægjunni, sem felst í Jrví að lifa í samræmi við sitt eigið raunverulega eðli. — Það er mann- legt að skjátlast, en sá er meiri, sem viður- kennir mistök sín en sá, sem streitist við að fylgja þeim eftir af hræðslu við álit annarra eða af þröngsýni og trii á eigin óbrigðulleika. Okkur ber að skilja, að við erum í senn vanmátta og sterk, og gera okkur grein fyrir, livar veikleiki okkar og styrkur koma fram. Með því sköpum við okkur heil- steyptari persóntdeika, sem skynjar betur eiginleika sjálfs sín, og miðar að því að Jrroska þá og bæta — svo fremi, að maður- inn sé ekki Jrjakaður af annarlegum hvöt- um, sem hindra alla Jrroskaviðleitni, en slíkt hrjáir eflaust alla einhvern tínra á lífsleið- inni. Við getum ekki gert ráð fyrir, að okkur takist að skilja og skýra allan þann margbreytileika og þá leyndardóma, sem eru faldir í okkur sjállum, en lífsvitundin er söm hjá okkur öllum og hefur ætíð svo verið og manneðlið Jrað, sem við eigum að kanna af mætti skynseminnar, og með því leiða okkur til betri og heilbrigðari viðhorfa á okkur sjálfum, svo og lífinu og tilverunni í heild. — Samfara aukinni Jrekk- ingu og skilningi á hinum ýmsu hliðum mannlífsins álít ég vera trúna á hinn eilífa lífsneista sameinaðan kærleikanum, sem er skapandi í upphafi tilveru okkar og gerir lífið að tilgangi og markmiði í senn. — Til- gangurinn felst í leitinni að hinu sanna, og markmiðið er sannleikurinn, sem nær allt- af er hjtipaður einhverri duld, en við samt öll verðum vör við að einhverju leyti, vegna Jiess að sannleikurinn býr með okk- ur sjálfum og er hvarvetna í lífinu í kring- um okkur. Þannig höfum við verið leit- andi frá upphafi okkar og þokast smám saman í átt að markinu, og ég trúi, að til þess að leit okkar beri enn ríkulegri ávöxt, þörfnumst við krafts, sem fólginn er í efl- ingu samfélagsanda, Jrar sem einstaklingur- inn skynjar betur hið innra markmið sitt og finnur það sameiginlegt með öðrum. Páll Skúlason. Hræringur Jöfur æðstur of hefur einræði vorri bræði í skóla megum skýla skammt þar vér í franuni. Rekkum eftir raðað reiði eru ei meiðir hefur í stöður höfði harri sínu fjarri. 66 MUNINN

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.