Muninn - 01.11.1978, Blaðsíða 3
Foroi'ct
Til allra lesenda Munins nær og fjær, í jörðu og á.
Her kemur þá fyrsta eintak Munins á þessum vetri út.
Aðdáendur blaðsins *verða ef til vill fyrir vonbrigðum með að
þetta eintak er ca. helmingi minna en "breiðskífan" sem kom út
á vordögum síðastliðnum, en það á þó sínar skýringar, því hið
ágæta blað Gambri hefur veitt okkur harða en drengilega sam-
keppni og byrgt kút sinn dyggilega fyrir ránfuglum og öðru ill-
þýði. Höfum við þó einskis svifist og beitt lúalegustu brögðum
til að velta kút þeirra og svelgja innihaldið, en ekki tekist
að ná svo miklu sem dreggjunum. Var þá ekki annað til ráða en að
beita heiðarlegri samkeppni, og sést hér árangur þeirrar til-
raunar.
En svo við víkjum að öðru, þá hefur vonandi ekki farið
fram hjá neinum að nú fara í hönd kosningar til embætta innan
skólafélagsins. - Efist einhver um afstöðu Munins í þeim, er
rétt að gera honum ljóst að blaðið er opinbert málgagn Hugins og
styður að sjálfsögðu þann lista er stjórn hans valdi. -
Það var þó ekki ætlunin að ræða um það, heldur hugsanlega
afstöðu þriðjubekkinga. Það er útilokað að þorri þriðjubekk-
inga viti ennhver deili á frambjóðendum, önnur en e.t.v. að
þekkja þá í sjón. Þriðjubekkingar hefðu þó getað bætt úr þessu með
því að mæta á framboðsfundinn og kynna sér viðhorf og stefnur
frambjóðenda. Því miður varð þó raunin önnur, mjög fá andlit
sáust úr röðum þriðjubekkinga á fundinum. Hvernig fara þeir þá
eiginlega að því að mynda sér skoðun um frambjóðendur og ganga
að kjörborðinu til að kjósa þá sem þeir telja hæfasta.
Það er mér óskiljanlegt. Ég skora því á þriðjubekkinga - og
i raunar alla sem eins er ástatt um - að sýna hér eftir meiri
áhuga á félagsmálum skólans og reyna að gerast virkir aöilar
í félagslífinu.
' Ritstjóri.
3