Muninn - 01.03.1991, Blaðsíða 11
efni að upplýsa það, að 4/6
meðlimir í þessari hljómsveit
hafa getið af sér afkvæmi og
eru þar af leiðandi sem sagt að
viðhalda mannkyninu (nefhljóð
frá Richie).
S: Það má líka geta þess að
hljómborðsleikarinn getur af sér
afkvæmi nánast daglega (allir í
hópnum hlæja djöfullega).
Sp.: Átt þú börn, Halli?
H: Nei, ég á engin böm.
I: Ég á böm og Bjami á böm
og Sigurður á böm og Jóhann á
böm. Ég er með myndir héma
af mfnum bömum, viljiði sjá?
Sp.: Hafið þið spilað mikið á
Akureyri?
S: Við höfum nokkrum sinnum
komið héma.
Sp.: Hvernig er að spila á
Akureyri?
I: Mjög skemmtilegt og það er
alltaf troðið.
R: Alltaf fullt hjá okkur.
Sp.: Getið þið lýst stemmn-
ingunni?
I: Ólýsanleg stemmning.
R: Akureyringar em hresst
fólk, gaman að spila fyrir þá.
I: Og annað eins úrval af gull-
fallegu kvenfólki - það er leitun
að öðm eins!
S: Við ættum að nota orð
þeirra sjálfra; það er mökkur af
kvenfólki!
R og I: KERLINGUM!
S: Það sem okkur finnst svo
ömurlegt við Akureyri er þessi
skurðgoði sem er héma, hálf
ryðgaður og skakkur.
Sp.: Viljið þið tjá ykkur
eitthvað um stjórnmál?
S: Já, við erum allir mjög
pólitískir.
I: Allir í sama flokki, alveg...
S: Það er Rottuflokkurinn.
R: Það er meira svona félag,
svona félagsskapur. Ógeðslega
er þetta...
S: Þú veist kannski að Bjami
Friðriksson stofnaði Kvenna
flokkinn.
R: Við erum í Óflokknum.
I: Já, við erum þeir fyrstu í
Hinum íslenska aftuihaldsflokki
og við erum mjög viridr þátttak-
endur í honum.
R: Með Ingólf leiðandi í aftur-
haldi.
I: Þetta var grín hjá söngvaran-
um.
R: HA-HA (hátt, skýrt hljóð
með nefgrettu).
Sp.: Það var fyrsti mars í
gær, afmæli bjórsins. Hvað
gerðuð þið að því tilefni?
I: Við erum allir með ofhæmi
fyrir bjór, fáum exem á bakið.
S: Ég tók nú ekki eftir þessu
fyrr.
H: Við vorum bara mest að
vinna í gær. Alveg bara, hven-
ær var það, frá hádegi og langt
fram á nótt.
Sp.: Hver eru framtíðaráform
Loðinnar rottu?
I: Að fara í klippingu, he, he.
S: Áform Loðinnar rottu em
þau að...
I: Að vera áfram leiðandi afl í
íslensku tónlistarlífi og stjóm-
málum.
Sp.: Ætlið þið að fara eitt-
hvað til útlanda að spila sam-
fara því að...
S: SAMFARA!?!
R: BÍÖið þið, við skulum ekki
blanda samförum inn f þetta...
OG ÞAR MEÐ VAR VIÐTAL-
IÐ BÚIÐ, SPÓLAN BÚIN OG
KOMIÐ AÐ MYNDATÖK-
UNNI.
Viðtal og myndir:
Ema og Silja Dögg.
MUNINN
11