Muninn - 01.03.1991, Qupperneq 34
HVERS VEGNA KYNFRÆÐINGUR?
Jóna Ingibjörg tekin tali
Eins og nemendur líklega
vita kom Jóna Ingibjörg Jóns-
dóttir kynfræöingur tU okkar
Listadaginn 8. mars og fræddi
okkur um kynferðismál. Fyrir-
lestur hennar var vel sóttur,
en þar sem forvitni ritstjórn-
armeðlima var enn ekki sval-
að eltum viö hana uppi og
fórum fram á einkaviötal.
Hún veitti okkur það fúslega,
og árla laugardagsins 9. mars
fórum við á fund hennar og
sonarins, Kára Sævars fjög-
urra ára.
-Hvers vegna lagðir þú upp
í að gerast kynfiræðingur?
-Eins og kom fram á námskeið-
inu í gær þá em tvær ástæður
fyrir því. Persónulegur áhugi á
efninu og svo að þegar ég var í
hjúkrun þá fannst mér vanta svo
mikið að þessi þáttur væri tek-
inn fyrir. Eg sá líka að það var
mikil þörf á því héma heima.
-Hve langan tíma hefur
sérnámið tekið?
-Þetta var ekki beint sémám í
hjúkrun, heldur kennslufræðilegt
nám. Ég tók Masterspróf í
kennslufræðum á sviði kyn-
ffæða. Ég lærði þar undir-
stöðuatriði kynffæöa og hvemig
maður getur samið námsefni.
Það tekur 2 ár og það þarf BS
eða BA próf til að komast inn.
-Hvar tókstu þetta próf?
-í Pennsylvaniuháskóla, Ffla-
delffu USA.
-Er mikið aö gera við
kynfræðslu í dag?
-Já, það getur verið það, það
koma toppar eins og núna þegar
allir framhaldsskólar em með
opna daga og sæluvikur. Þá
vilja menn oft fá einhvem utan-
aðkomandi og efni sem þau
hafa áhuga á.
-Getur þú annað öllum
þeim beiðnum sem þú færð
um námskeið og fyrirlestra?
-Nei, alls ekki, ég tek einungis
það sem ég hef mestan áhuga á
og vil kynna mér nánar.
-Er markaður fyrir fleiri
kynfræðinga á íslandi?
-Já, alveg hiklaust, en ef þeir
æda að vinna sjálfstætt eins og
ég hef gert þá er það alveg
gífurleg vinna. Þeir þurfa sjálfir
að koma sér á ffamfæri og láta
af sér vita.
-Kom þér á óvart sú at-
hygli sem þú hefur hlotiö
vegna starfs þíns?
-Já, ég spáði aldiei í það að ég
yrði ffæg. Það sem ég hugsaði
um var að það yrði nóg fyrir
mig að gera.
-Finnst þér umræðan um
kynlíf vera orðin frjálsari eftir
að þú tókst til starfa?
-Jú, mér finnst margt vera farið
að taka við sér, Ld. er kynffæði-
félagið orðið mun öflugra. Svo
hafa farið af stað grunn-nám-
skeið fyrir heilbrigðisstéttir
vegna þess að almenningur er
farinn að koma meira til þeirra
með spumingar. Einnig eru
gefin út tímarit og gerðir
ffæðsluþættir, þannig að margt
jákvætt hefur gerst.
-Eru íslendingar fáfróðir
um kynlíf?
-Ég held ég verði að svara
þessu með jái, en samt með
fyrirvara. (Passaðu þig Kári, það
getur rifnað gallinn þinn, viltu
fara með þetta út og leika þér í
snjónum?) Það eru alltaf ein-
staklingar sem eiga heilu kyn-
lífsbókasöfnin heima hjá sér, en
almennt erum við frekar fáfróð.
-Hvaö finnst þér um kyn-
fræöslu í skólum?
-Mér finnst það vera viss skila-
boð að ekki er nein ffæðsla í
skólunum, en helst ætti kyn-
fræðslan að byrja strax í leik-
skóla.
mikXö
fyrir að
skfóa i ýol ?
i billiard ?
Billiardinn
Kaupvangsstrœti 19 - Sími 24805
34
MUNINN