Muninn - 01.11.1994, Síða 29
sín af eigin klæðaburði, sérstaklega á
skemmtistöðum.
Blygðunarkennd kvenna í 4.
bekk týndist einhversstaðar á
svipuðum slóðum og toppar og Tindar
en þangað hefðu nokkrir átt að fara í
kynnisferð þegar heim kom. Þessi
óvænta týnsla olli miklum fögnuði
meðal hinnar smávöxnu portúgölsku
karlþjóðar en andlit þeirra stemmdi
einmitt við öskjulagnirnar. Það varð
þó ekki fyrr en síðasta kvöldið að það
varð móðins að prufukeyra slíkan
búpening. (nafnalisti er
óbirtingarhæfur)
Sagres, Sambucca, kínverskur
veitingastaður, Gelidos, Sagres,
kortasími, gamli bærinn, Vegas bar,
ólögleg möskvastærð, senjórítur,
ströndin, gelt að hundum, öldurnar,
Sagres, kók hjá bindindismönnum,
Siffi + Tequila = sönn ást, víndauði,
magakvillar, Sagres, timburverk-
smiðjur, hávaðakvörtun, þvottabjörn,
ath. ekki Björn Ágúst, Santi Kiristó fer
og fær sér glóðarsteikt auga,
hraðbankar, steinilagðar götur,
steinlagðar konur, froðudiskótek,
Sagresfroða, kareoke, „Colin, the
scootsman, were you callin?", dúkkan
hans, father Dunn, ódýrt brauð, Pizza
Hut- „eigum við að kafna í eigin skeggi
eða fá afgreiðslu hérna?",
filmuframköllun, köllun, perralegir
portúgalar og næturgalar, þrekvaxnir
öryggisverðir, Mr. Taggart, Sagres,
nætursund Einars, meira Kareoke,
ljótur stjórnandi, Sigmar B. Hauksson,
gosbrunnur, Hvíta dyrið Auðar,
ammæli, Örn Traustason íhugaði að
smygla Skjaldböku inn í landið,
Þorsteinn fékk sér handjárn, Silvias,
allir hinir barirnir, Pedro,
Laugavegurinn með draslbúð, ísbúð og
minjagripabúð X hundrað, hvis ikke
mindre, ströndin, sólolía, burni,
Mummi, skortur á neftóbaki, drulla,
Móðir Teresa og skúringagengið
„clean?", þjórfé, tvær lyftur, Sagres.
Heimferðin
Heimferðin lýsti sér eins og
útferðin, þó ekki hjá konunum. Menn
voru þó heldur þynnri, brúnni,
reyndari, brottfarnari, Ári, víðkomnari,
fátækari, meira farangraðari, minna
gra.....falvarlegir. Fríhöfnin á
MUNINN
29