Muninn - 01.11.2004, Blaðsíða 47
(*£©301
*£f¥© ■
fartölvum og þess vegna viþ*’/
ég benda á nokkrar tölvur
sem mér fannst álitlegar og
hvar þær er að finna. Þessar
tölvur eru líklega flestar
til á fleiri stöðum en þeim
sem hér eru teknir fram
og jafnvel hægt að fá þær
ódýrari. Þessar tölvur sem
ég tek fram hér eru flestar
í dýrari kantinum, enda frá
framleiðendum sem vel er
látið af. Ódýrustu tölvurnar
sem eru á markaðnum eru
Quanta tölvur sem fást á i
computer.is en þær eru 1
tiltölulega nýkomnar á
markaðinn hér á landi og i
því lítil reynsla komin á
þær. Ódýrasta tölvan sem
ég fann var frá Quanta og i
kostaði 65.550 kr. og var á
computer.is en hægt er að
fá notaðar tölvur á lægra
verði. Einnig hafa nýlega ]
komið á markaðinn ódýrar
tölvur eins og til dæmis
Acer, Mitac, ISSAM og
Iridum. En eins og í mörgu ;
öðru er það ódýrasta ekki
alltaf hagkvæmast þó það sé 1
vissulega góður kostur fyrir
marga.
Dell tölvur eru
mjög góðar. Þær þykja
áreiðanlegar og hafa mjög
lága bilanatíðni. Þær er
hægt að fá meðal annars í '
EJS þar sem fýlgir þriggja
ára ábyrgð. Dell Latitude
D505 sem fæst í EJS er
með 1.4 GHz Intel Pentium
Celeron örgjörva, 512 MB
DDR vinnsluminni, 40 GB 1
harðan disk og þráðlaust ■
netkort og kostar 139.900
-kr. Dell tölvurnar frá EJS
»þafa þann kost að vera með sig hvað mest úr frá hinum
ísíenskt lyklaborð. tölvunum. Apple tölvur eru
HP Compaq þekktar fyrir áreiðanleika
fartölvurnar hafa verið og þykja mjög þægilegar
lengi í þróun og eru mjög í notkun en hafa aftur á
góðar. Þær er meðal annars móti þann böggul að bera
hægt að fá hjá Task, Opnum að vera í dýrari kantinum.
kerfum og Samhæfni. Hjá Apple IMC er hægt
Tölvuverslunin Task býður að fá Apple Powerbook
HP Compaq 0x9105 á 12” Combo á 179.900
174.900 kr. sem er með kr. Hún er með 1,33GHz
AMD Athlon XP-Mobile PowerPC G4 örgjörva, 256
A3000+ örgjörva, 512 MB MB vinnsluminni, nVidia
vinnsluminni, 60 GB harðan GeForce FX skjákort, 60
disk, DVD skrifara og nVidia GB harðan disk og DVD
GeForce420 skjákort. HP skrifara.
tölvur eru einnig til í Expert
og á computer.is.
Fujitsu Siemens eru
með lægstu bilanatíðninina
og eru mjög áreiðanlegar
tölvur. Netheimar bjóða
Fujitsu Siemens Amilo Pro
V2000 á 159.900 kr. en
hún er með Intel Centrino
1.4 GHz örgjörva, 512
MB vinnsluminni, 40 GB
harðan disk, skrifara og allt
að fjögurra ára ábyrgð.
IBM tölvur
eru margverðlaunaðar
tölvur enda er IBM einn
helsti framleiðandinn í
tölvugeiranum og býr yfir
mikilli reynslu á því sviði.
IBM voru frumkvöðlar
í fartölvugerð og hafa
verið öðrum fyrirtækjum
fyrirmynd. í Nýherja er
hægt að fá IBM ThinkPad
R51 á 159.900 kr. en hún er
með 256 MB vinnsluminni,
Intel Pentium M 1,5 GHz
örgjörva, 40 GB harðan disk
og öryggisörgjörva.
Síðast en ekki síst
eru Apple tölvur sem skera
)P©°6%h!!X ¥
*;!©',
Daníel Starrason