Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1920, Side 9

Heimilisblaðið - 01.01.1920, Side 9
HEIMILISBLAÐIÐ 7 Skibo-kastalinu á Skotlandi. Sumarbústaður Androw Carnegic's. aðir verkamenn; en verkamönnum þótti ilt að þoka fyrir dauðri vélinni. Þessi umbót Carnegie’s á námuvinnunni kom af þvi, að hann vildi auka framleiðsluna og vinna með því bug á keppinantum sínum. En Carnegie Vann sigurinn, verkamenn urðu undan að lata; en sigur hans varð jafnframt sigur þaim til handa, því nú streymdu pantanir að Ur öllum áttum og gróðinn varð feiknamikill; e*i svo lét Carnegie verkamenn sína fá srnn hlut af þeim gróða og lyftist þá á þeim ^rúnin aftur. Þegar Carnegie var 62 ára gamall, þá dró hann sig út úr þessari viðtæku umsýslan, kvsentist og gerðist nú velgerðamaður mann- kynsins. Auði sínum skifti hann niður i sjóði 111 eflingar einhverju góðu. »Eg á ekki auð- lnn sjálfur«, sagði hann, »eg hefi hann að ^áni 0g má eigi verja honum nema sam- kvaemt vilja lánardrottins míns«. Um sömu ^undir kej-pti hann Skibo-kastalann gamla ^eima á Skotlandi og bjó svo upp frá því á Sumrin í því landinu, þar sem hann hafði slitið barnskónum bjá föður sínum fátækum. ^ú fá þúsundir manna að njóta auðæfa lans. Einn sjóður hans á að vera til verð- anna handa þeim, er sýna frábært snarræði og hugrekki í því að bjarga mönnum úr lífs- háska. íslenzkir menn hafa þegar hlotið þau verðlaun oftar en einu sinni. jiukkan mín. Lukkan bjóli leikur á, lengi’ er ei að breytast. Ekki henni allir ná, — enginn má samt þreytast. Hvað er lukka, heims er börn hamslaus eftir strekkja? Upphefð, glaumur, aurasöfn ærið marga blekkja. Lukkan mín er langtum nær og ljær mér gleði sanna: Hún í mínu hjarta grær og heitir ást til manna. G. G. i Gh.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.