Heimilisblaðið - 01.05.1938, Side 5
HEIMILISBLAÐIÐ
69
Nýja
Sj áland
Eftir
Jónas Sveinsson,
Bandagerði
I síðasta tbl. Hbl.
gat ég þess að bráð-
lega yrði hægt að
fara til Nýja Sjá-
lands í flugvél á 2—3
sólarhringum, þó má
búast við að nokkur
ár geti liðið þar til
ferðir hefjast þangao,
en það verður áreið-
anleg-a í t ð þarra er
nú vaxa; upp.
Ég hefi að nokkru
lýst veðurgæðum N.
Sjálands, þó má bæta
því við, að þrátt fyrir
að þar eru um; 5 milj.
kýr og bændur marg-
ir stórauðugir, eiga
þeir þó ekki hús yfir
kýrnar, það eitt ætti
að vera næg sönnun
þess hversu tíð er þar
indæl og hversu mikill miunur er á tíð-
arfari þar bg hér, þar sem þarf að gefa
kúm inni í 9 mánuði cg varla er svo gott,
þótt í júlí sé, að óhætt sé að hafa kýr úti
nýboirnar að nóttu til.
Nýja Sjáland er eins og áður segir tvær
afar s’órar eyjar, liðlega 2-t sinnum stærri
en Islancl. Norðureyjan er 114 295 km2 eða
mikið stærri en Island. Þar er stærsta
borgin Auckland; þaðan liggur járnbraut
suður til Wellington, og er sú leið c. 550
km. A þeirri leið er margt merk legt að
sjá: Gjósandi hveri, fagra fossa, stöðuvötn
og ár. Þar er eitt hið fegursta vatnsfall,
fljótið Wanganui, sem, kallast hið helga
fljór. Mariene (sjá mynd). Þar nokkru
austar er bær, sem heitir Danavirki eða
Hawkes Bay, bygður af dönskum innflytj-
endum eftir 1872. Árið 1872 lét stjórn
Nýja Sjálands seglskip, sem hét »Iiövding«,
flytja þá sem vildu cg gátu farið frá Dan-
mörku án endurgjalds til Nýja Sjálands.
Með skipinu fóru 74 hjcn með 280 börn,
30 ungar stúlkur og' 25 ungir menn; skip-
ið lagði út 12. maí 1872 og kom til Nýja
Sjálands 20. sept. sama ár heilu og höldnu,
án þess að svo m:kið sem eitt barn dæi á
leiðinni, og tveim árum síðar, eða 1874,