Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1939, Qupperneq 9

Heimilisblaðið - 01.02.1939, Qupperneq 9
HEIMILISBLAÐIÐ 29 meðal við svefni« — hvíslaði presturinn að mér. »Gekk ykkur ekki vel að aka hingað?« »JÚ, þökk fyrir«, svaraði bóndinn; »ann- ars átti ég fullt- i fangi með vinstri hryss- una. Hún er svo rækalli baldin — og breyt- ir æfinlega þvert. á móti því, sem henm er sagt að gera. I gær voru telpurnar mín- ar að aka með henni, og þá sagði ég henm að fara hægt og gætilega; en þá, þaut hún út á allt, sem fyrir varð, eins og eídur eim- yrja værí undir löppunum á henni. I dag langaði mig til að fara hratt* því að ég stjórnaði henni sjálfur og ræð við hróið; en þá ókst hún varla úr sporunum, hvernig svo sem ég hvatti hana. En ég held, að ég geti lagao hana til, ef ég hefi hana í tamn- ingu. svo scm misseri enn þá:. Það er annars undarlegt, — hún er allt að einu eins og han,n Prestsrauður«. »Já«, svaraði presturinn. Ég sá að hann var fyrir löngu hættur að hlusta á Kjeld- borg, og var alveg búinn að missa samheng- ið; hann var með hugann langt í burtu. »Já, presturinn varð annars fyrir ljótu skakkafalli .með þann rauða. En þér áttuð einn sök á því. Því spurðuð þér mig ekki ráða. Ég átti einmitt. þá ágætan fola, s,em ég ætlaði að selja. Þér hefðuð fengið hanr. fyrir hálfvirði. En nú er ég búinn að selja honum Marteini Jensen hann,«. »Svo«, sagði presturinn og geispaði; og það varð til þess, að ég fór líka að geispa. Aset.ti ég mér því að leita ánægjunnar og gleðinnar annarsstaðar. Ég sá að þeir herra Hans og Korpus Júris voru sokknir niður í eitthvert umræðuefni, og virtust ekki gæta neins annars. Ég fór því þangað og bjóst. við andlegri nautn og andlegri fæöu; en þessi von brást mér hrapalega. Herra Hans var nefnilega að lýsa fyrir Korpus Júris öllum þeim dæmaiausu eiginleikum, sem folinn hans Marteins Jensens, hefði til að bera. Þegar ég var búinn að hlusta þessa samræðu um stund, kom yfir mig sú dæmalausa geispafreisting, að ég varð nauðugur viljugur að fullnægja henni, For ég þá enn af nýju að svipast um eftir ánægjutilbreytingu — og lét Korpus .Júris einan um hituna hjá herra Hansi. Gamli var hyggnastur af okkur öllum: hann sat, úti í horni, með bók og las í mestu makindum. Reyndar fannsf mér athæfi hans ekki sem allra gestristnislegast; en hvað um það — hann undi sér vel. Nú fór ég til kvenfólksins — þar hugsaði ég, að ég gæti látið 1 jÓ.S mitt. skína, svo um mun- aði. Andrea Margrét var að streytast við að kalda samræðunum við; en það var víst enginn hægðarleikur. Um leið og ég settist við hlið hennar, leit hún kankvísiegá fram- an í mig; og ég l:s úr augum hennar: »Nú skulum við reyna hvað stúdentinn getur«. Ég lagaði línkragann minn og bjó mig út í brandasálma. Síðan byrjaði ég: »Hafið þér séð nýja leikarann, sem öll- um Kau mannahafnarbúum þykir vænst um, sem stendur?« Svarið var langt og kauðalegt »Ne-ej«. »Þið hafið máske ekki komið til höfuð- staðarins í vetur?« »Ne-ej«. »Þið farið máske ekki oft til höfuðstað- arins?« »Ne-ej«. »Yður tekst ágætiega!« hvíslaði Andrea Margrét, að mér. »Mér þykir þetta ákaflega gaman. Mig hefir lengi langað til að sjá »Nei-ið« leikið, og' nú er ég að fá ósk rnína uppfylltax. »Ekki er öll nótt úti enn«, hvíslaði ég að henni aftur, og byrjaði að nýju: »Þið bú.ið allt af í sveitinni?« »Já«. »Og þið unnið sveit,asælunni?« »Já«. »Það er líka oft sæla í borgunum, ekki síður en í sveitunum!« »Já«. »Það er mjög erfitt að skera ur því hvort er skemmtilegra«. »Já«. Mig fór að sárl,anga til, að ég væri kom- inn til þeii’ra Korpus Júris og herra Hans.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.