Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1939, Qupperneq 8

Heimilisblaðið - 01.05.1939, Qupperneq 8
80 HEIMI LISBL AÐIÐ Saiiiileikurinn er sagna beztur. (Jah. 18, 33., 37.). Sannleikurinn lifir lengst, segir gamall málsháttur, og að það sé rétt, sannast meö- al annars á því, að hið drambláta róm- verska ríki Pílatusar er löngu liðið undir lok, en sannleiksríki Jesú Krists er stöö- ugt að vaxa. Lygin dregur fram lífið skamma stund, en svo kemst allt upp, og endirinn verður: skömm og skapraun. Að vera sannleikans megin, er eitt af því, sem oss mönnunum er nauðsynlegast að læra þegar í æsku. Börnin eiga líka auðveldast með að vera sannleikans megin, sérstaklega á þessum tímum, þegar andi Krists er farinn að ná tökum á uppeldis- starfinu, með mildi sinni og ástúð. En ósannindi og iygi eru áleitin, og geta seytb að inn í barnssálina að óvörum, af því atí Qsannindi, hálfur sannleikur og hálfsögð saga eru svo almenn. Þetta er smitandi. Ösannindin eru oft svo freistandi, eins og eplið hennar Evu, svo gljáfægð og girnileg til gamans og jafnvel framdráttar. Menn halda að þeir komist. hjá refsingu með ó- sannindum (og því miður er þvi líka st.undum svo farið). Og' stundum haida menn, að þeir geti komið sér í mjúkinn hjá öðrum, eða geti orðið glæsilegri. Og það sem er verst af þessu öllu: Menn, koma sök af sér á aðra, sem eru saklausir, eða tæla hreinhjartaða. og hugmilda menn til þess, sem rangt er. En þó að auðvelt, sé fyrir barnshjartac að venjast á ósannindin, er oft. erfiðara, að losna við þau. Pví er líkt farið með lyg- ina og' sýklana og illgresið, t. d. arfann, Ef arfafræ kemst í garðinn, er hann fljót- síns, og rnælti ofur hlýlega: »Æ, lof mér að halda um gimsteininn minn!« Þessi orð, töluð af svo ábærilegu kær- leiksþeli, vöktu hjá mér þessa, spurningu: Eru ekki önnur verðmæti til sem æðri eru gulli og gimsteinum? lega alþakinn arfa. Þess vegna er alveg nauðsynlegt að reyta eða. hreinsa garðinn strax í byrjun. Um að gera að halda garð- inum hreinum og- fallegum. Auk þess er lygin mesta svikaepli. Hún gabbar þá menn stöðugt, og lygur að þeim, sem trúa henni. Það er einkenni lyginnar. Hún lygur öllu og miskunnarlaust að öll- um. Lygin telur mönnum trú um, að þeir haf'i einhvern vinning eða gleði af því atí fara að hennar ráðum. En þetta fer venju- lega alveg öfugt, fyrr eða síðar kemst, viilr upp, og svo verður að reyna að bæta, vití mörgum lygum í stað einnar, og ekkert af þessu dugar: allt endar með skelíingu og samvizkubiti gagnvart Guði og mönnum, og srnán og lítilsvirðingu. . 1 textanum kemur Kristur til þín. Hann er konungurinn í ríki sannleikans. Þú veizc vel, hvað hann vill þér. Hann vill fá þig fyrir borgara. í sínu ríki, hinu fagra ríki sannleikans. 1 því ríki hafa mennirnir góða samvizku. Þar er ekkert að fela, engu atí leyna. Og hafi breyskur maðurinn, eða smávaxió mannbarnið gert eitthvað, sem ekki átti að vera, er beinn og mjór vegur — að vísu stundum þröngur — út úr þeirri yfirsjón og villu, það er aö iðrast, játa yf- irsjónina, og fá, allt fyrirgefið, eins og Georg litli Wasinghton, þegar liann skemmdi eplatréð með fallegu exinni, sem pabbi hans hafði þó sjálfur gefið honum. Ef þú vilt verða borgari í ríki sannleik- ans, s,kalt,u gerast smásveinn eða smámey, sem óhætt er að reiða sig á og trúa fyrir einhverju. Og vilijr þú verða. borgari í hinu fagra ríki sannleikans, kemur seinna sú stund, að þú heyrir Jesúm sjálfan, konung sann- leikans,, segja við þig: Velkominn heim. góði og trúlyndi þjónn, sem varst trúr yíir öllu þínu lífi, meðan þú dvaldir á jörðinni. Ég mun setja þig yfir meira. Gakk inn í fögnuð herra þíns. Og þar muntu enn reyna á hinn dásam- legasta hátt, að sannleikurinn er sagna beztur.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.