Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1939, Side 13

Heimilisblaðið - 01.05.1939, Side 13
HEIMILISBLAÐIÐ 85 Það, sem Drottinn Jesús vekur athygli á. Drottinn Jesús tekur eftir öllu, þó að hann geri ekki alltaf athugasemd við þao, sem hann sér. Þegar hann var staddur í musterinu, þá »leit; hann yfir allt« (Mark. 11, 11.). sem þar var og fór fram. Við einn af hin- um sjö söfnuðum í Asíu segir hann: ».Ég þekki verkin þín«. Astand vort getur verið lionum til gleði eða bakað oss ávítur af vörum hans. Oft segir hann ekki neitt. En þegar hann leiðir athygli vora að ein- hverju eða einhverjum, þá er ávallt um milrilvægt mál að ræða. Háðglósur leiö&tu, herra í stœrstu kvöl á liarmastund. Hjartað þitt brann fyrír héimsíns syndab'ol, og heilög wnd. Skrt var þér borið særðum krossi á, scett að eg fengi þér að smakka hjá. Sverðið nú skar hið særða móðurbrjóst. er sá á kross sonarins blíða svjðabólgið brjóst og benjafoss, sem hlaut að renna heimsins fyrir synd, og heilög buna, hjartans Uknarlind. Þyrmmum stungið lieilagt höfuð þitt, ó herra minn, legg eg það sætt og Ijúft við hjartað mitt, þá lífið finn. Gráta nú vil þaö, gjörði eg þér á mót; græðarans til eg kem af hjartans rót. Lof sé þér, Jesús, lífsins kongur hreinn; eg lifi þér. Lof sé þér, Jesús, þrennur ertu og einn; þú bjargar mér. Lof sé þér, Jesús, lífsins orðið þitt leggur þú blítt við syndugt hjartað mitt. Runólfur Guðmundsson. Hann vekur athygli á konunni, sem hafðí smurt fætur hans (Lúk. 8.). Hann segir við Símon Farisea: »Sér þú konu þessa?« Sú kona hafði gengið hljóðlega, inn í hús- ið, þar sem hann var að borði, gengið tii hans, og látið honum í ljós virðingu sma fyrir það, að hann hafði boðað henni fyrir- gefningu allra hennar synda. Hann var friðarboðinn með »fæturna fögru«, sem kominn var til syndaranna til að bæta úr neyð og þörfum þeirra. Konan lét þegjandi elsku sína í Ijós: »hún vætti fætur hans með tárum sínum og þerraöi þá með hári sínu, kyssti þá og smurði meö smyrslum«. Ekkert af þessu hafði Fariseinn gert. Það, sem sérstaMega dró athygli Jesú að kon- unni, var það, að him elskaði mikið. Skyldí Drottinn Jesús geta, sagt, hið sama um konur þær, sem þetta lesa eða heyra? Þá er frá því sagt (Matt. 18), að Droth inn Jesús kallaði til sín lítið barn og setti það mitt á meóal lærisveinanna og sagði við þá, að ef þeir vildu verða miklii í himnaríki, þá yrðu þeir að.verða eins og þetta barn. Þeir vildu verða miklir að mannlegum mælikvarða.; en Drottinn bend- ir þeim á þann siðferðilega mikilleika, sem er yndislegur í augum hans. Það er bar- ist aJlt i kringum ess í heiminum. Það er barátta milli þjóða og einstaklinga um inn æðstu sæti og hin mestu völd. Og sá andi nær meira að segja, tökum á kristnu fólki. En hinir sönnu lærisveinar Jesú, eru þeir, sem hafa öðlast hugarfar hans. Svo lengi sem vér keppum eftir heiðri og' hefðarstöd- um, þá getum við ekki verið sælir. Sú hug- arstefna á einskis stuðnings að vænta frá G-uði. Þar á móti er hugarfar barnsins lað- andi í augum Guðs og góðra, manna. Einu sinni kallaði Jesús lærisveina sina til sín og vakti athygli þeirra á gjöf fá- tæku ekkjunnar (Mark. 12). Þ.eir létu sér mjög finnast, til um hina miklu og skraut- legu musterisbyggingu; en hér var um það að ræöa,, sem hjarta Drottins fannst meira til um en allur ytri ljómi. Margir auðmenn

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.