Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1953, Page 10

Heimilisblaðið - 01.12.1953, Page 10
Gunnar Dal SÆ R Milt og rótt sefur sær í silfurljósi nætur, brotna log kóralhvít í kristalsöldum lætur. — Sævarhjartað hraðar slær. Hlusta, jörð, þér brjósti nær á æðaslátt og andardrátt. Þig kyssir vatnavör. Ég er útsær af draumum, sem upp til þín stigur, útsær af vængjuðum draumi, sem flýgur yfir þig, jörð mín, á óttunnar himni og yrkir þér Ijóð sín í regni og vindum. Sæbrjóstið lifnar þá, Iyftist og hnígur, en Iágróma jörðin í eyra mér hvíslar: „Hvert ætlarðu náttský á óttunnar himni, sem eilifar stjörnurnar hverfa mér lætur?“ — Og úrsvalur vindurinn yfir mér grætur útsæ af tárum. — í regni og straumum aftur ég hrapa í útsæ af draumum. Um kóralhaf og sólarsæ söngvagyðjan stígur. Gullfingruð geislahönd um gígju hennar flýgur. Sævarhjartað hraðar slær. Hlusta, jörð, þér brjósti nær á æðaslátt og andardrátt. Þig kyssir vatnavör. Um heimsrikið sokkna mitt helmyrkur streymir í hjarta míns djúpi, sem lykilinn geymir að grafreitum aldanna; gimsteinum djúpsins, gimsteinum djúpsins, sem ekkert fær numið annað en dauðinn. — Og alda mín gleymir öllu, sem hrynur og skolast í djúpið. Marmarahöllunum, sögum og söngvum, siðunum, trúnni og spekinni fornu, drauminum týnda og dögunum horfnu. — En djúpið er minnugt á sólir, sem slokkna, himin, sem myrkvast og heimsríkið sokkna. Gunnar Dal er einn af efnilegustu yngri IjóSskáld- um okkar. Hann er stúdent úr Menntaskólanum 1 Reykjavík, og las eitt ár heimspeki viö Edinborgar■ háskólann, en sigldi síSan til Kalkútta í Indlandi og hélt ftar áfram heimspekinámi. Mun hann eini íslendingurinn, er stundaS hefur nám þar. Fyrir jól er von á tveim bókum eftir Gunnar. Önnur bók- in er um indverska heimspeki, en hin er IjóSabók, er nefnist ,£finxinn og hamingjan". Kvœði þaS, er hér birtist, er úr þeirri bók. AriS 1950 kom út fyrsta IjóSabók Gunnars, „Vera“, og er hún nú ófáanleg- Sjöstjarnan sæinn á silfurregni grætur og demantglit í dauðamyrk djúpin falla lætur. Sævarhjarta sofðu rótt. í sjöstjörnunnar ljósu nótt í dauðaþögn dularmögn djúpsins lyfta þér. Ég er útsær af myrkri á sökkvandi söndum, særoki hrapandi á rjúkandi ströndum. Ást min þar brotnar í brimhyítu löðri við brjóst þér og ólgandi sogast í djúpið, og myrkur þess fyllist af minningum sárum. Ó, máni og stjörnur, hví elska ég landið, auglit þitt, jörð, sem um eilífð mér verður ókunnur heimur og fjarlægur draumur? Ó, jörð, ég er villtur og stórhöggur straumur, straumur af svipum og hafdjúpsins öndum sem landnámsins biðu á sökkvandi söndum.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.