Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1953, Page 11

Heimilisblaðið - 01.12.1953, Page 11
r. Alfred Wiesen o stýriniaður á e/s „New York“ Neyðarkall frá Sisto (STYTT ÞÝÐING) yA RIÐ 1934 fór gufuskipið N "New York“ síðustu ferð Arneríku til Evrópu fyrir ^ af hálfu Hamborgar-Ame- gufuskipafélagsins. Það agði úr höfn á tilsettum tíma, bví að ætlunin var, að farþeg- arUir yrðu komnir til ákvörð- ?narstaðar síns á aðfangadags- ^v°ld. Skipið tók eitt þúsund rbega, og voru flest rúm skip- • Meiri hluti farþeganna v°rU Þjóðverjar á heimleið. arþegarnir voru allir í sól- * '^sskapi, enda þótt vetrar- ey yfir Norður-Atlantshafið Se síður en svo tilhlökkunar- Ver^- ,,New York“ er gott sjó- °g má veður spillast mik- j. ^ bess, að farþegar geti ekki n^ð fara vel um sig og haft a sína hentisemi. ^egar komið var alllangt frá ^öndum Ameríku, tók að Vessa af vestri, og náði veð- ^hæðin Orátt 11 vindstigum. u brátt fyrir það hélt þetta , smálesta skip áfram e'ua leið yfir fjallháar öld- Ur ... djúpa öldudali í áttina Rvrópu, enda hafði „New HElMlLISBLAÐIÐ York“ oft lent í misjöfnu veðri á vetrarferðum sínum yfir At- lantshafið. Loftvogin féll niður í 716 mm. Við vorum stödd í miðju lágþrýstisvæðinu, sem heita mátti að fylgdist með okkur, og vegna víðáttu þess voru engin tök á að komast út úr því, þótt við hefðum breytt um stefnu. Og heim urðum við að kom- ast í tæka tíð. Við urðum því skilyrðislaust að fylgja áætl- un. Hver krókur á leiðinni hlaut að ræna okkur dýrmæt- um tíma, sem erfitt var að vinna upp aftur. Og „New York“ heldur áfram í austurátt með 20 hnúta hraða, svo að enn er ekki um tímamissi að ræða. Af efra þil- fari geta farþegarnir horft á holskeflurnar brjóta á skipinu, án þess að væta sig í fæturna. Allt er á fleygiferð, himinháar holskeflur og kafþykkir skýja- bólstrar. Að kvöldi hins 17. desember fer þó flestum að þykja nóg um. Veðurhæðin er ofsaleg og það gengur á með hagléljum. Hið risavaxna skip klýfur ólgu- sjóinn með þungum skriði. Fyrsti stýrimaður sér um, að allra varúðarráðstafana sé strengilega gætt fyrir nóttina. Allt er gert, sem í mannlegu valdi stendur, til þess að tryggja öryggi skipsins, far- þeganna og farmsins. Öllum gluggum er lokað með járn- hlerum. Ég gegni, eins og vant er, varðstöðu á stjórnpalli milli klukkan átta og tólf að kvöldi. Fyrirskipanir eru sendar sím- leiðis um allt skipið. — Hlerar settir fyrir á bak- borðsfarrými A-þilfars. Vörðurinn aftur á tilkynnir: — Brotsjór yfir afturþiljur, ekkert tjón, allt í lagi. — Allir hlerar á þriðja far- rými settir fyrir og aðgættir. Tilkynning bátsmannsins á vakt: Kaðlar strengdir um öll þilför. Fram- og afturþilförum lokað fyrir farþegum og áhöfn. Áhöfn fari einungis til svefn- klefa sinna fram í um neðri þilför þriðja farrýmis. [191]

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.