Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1953, Qupperneq 21

Heimilisblaðið - 01.12.1953, Qupperneq 21
Nei, það dugði víst ekki að ta^a Um orðinn hlut, heldur ^a þessu karlmannlega. ^ann gat sjálfum sér um ennh var skammarnær að Vera svolítið forsjáll. ^fir höfði hans glumdi í s^u® og matkvíslum, og s|"arkri angan af steiktu kjöti 0 fyrir votar nasir hans. Þetta var ærandi glaumur, esPaði upp í honum hungrið. . anP kingdi beisku munnvatn- Ulg sUlt °g strauk slímkenndan ardropa úr nefi sér. ^ ara að hann væri kominn eirn> heim til mömmu og Pebba. ]Sfú sátu þau í eldhús- ^runni sinni, snæddu fá- r°tna en góða máltíð, hátíð- eg a svipinn. Augu mömmu voru eitthvað ,v° ankanaleg. Þau hvörfluðu ^ 1 hláinn, viðkvæmnislega , ' Kannske var hún að hugsa aPs, gamla konan. Og pabbi ^ eitthvað svo hjárænuleg- r’ tunghyggður, eins og hann ^aPtaði eitthvað. Mamma auk vot augu sín og sagði: a® vildi ég, að hann Nonni ar væri kominn. Mér finnst , ar eitthvað vanta, þegar j^ann er ekki. 0, hann hefur síálfsagt gott, strákurinn, Pabbi hughreystandi. Ég ^nna) að hann hafi fengið bögg- lnP sinn á réttum tíma, sagði ^ma. ^á mundi hann allt í einu ^r bví. Hann átti jólaböggul, Ungsstóran, krossbundinn ^°pa^ancb- ^ a* birti yfir svip hans og ^°nUrn hlýnaði fyrir brjósti. Var víst kominn tími til kíkja í hann. Hann var Uuilega frá þeim heima, vænti ekki bögguls annars staðar frá. Hann reis á fætur, gekk að bældu fletinu, seildist undir koddann og dró upp ferkant- aðan böggul. Það var skrifað á hann öll- um megin. Párið hans pabba, hugsaði hann. Hann var vanur að merkja allt svo vel, gamli maðurinn. Hann settist á rúmið með pakkann milli hnjánna og rakti utan af honum lopabandið, við- kvæmnislega brjósthýr. Yzt var grár umbúðapappír, vandlega samanbrotinn, síðan kom í ljós hvítur pappakassi, einnig krossbundinn og dyggi- lega merktur. Með stakri varúð og heitri tilhlökkun leysti hann bandið og lyfti lokinu. Undir því var bréf til hans, en innihaldið vandlega hulið dagblöðum. Af gömlum vana reif hann fyrst upp bréfið og las. Elsku Nonni. Ég vonast til, að þessar lín- ur hitti þig glaðan og heilbrigð- an. Okkur líður vel hér heima, höfum nóg að bíta og brenna, en það er fyrir mestu. Nú fara blessuð jólin að nálgast. Mikið vildi ég, að þú gætir verið heima yfir hátíð- ina. Okkur finnst eitthvað vanta, og það er ekki nærri því eins hátíðlegt núna. En það tjóar víst ekki að tala um það. Það er svo voða dýrt að ferð- ast núna. Það er annars hræði- legt að fara í kaupstað, enda forðast pabbi þinn það eins og heitan eld. Hundrað krónur hverfa, og maður sér ekkert, veit ekkert. Jæja, blessaður. Hún verð- ur ekki stór né veigamikil, jólagjöfin þín, en vonandi kem- ur hún að góðum notum. Ég sendi þér peysu, sokka og vettl- inga.------- Stafirnir urðu allt í einu feimnislegir, eins og þeir væru að afsaka tilveru sína á örk- inni. Skriftin var svo óskýr, að hann átti bágt með að lesa úr henni tjáningu bréfritarans. -----Pabbi þinn lógaði gols- ótta sauðnum, þessum, sem hélt sig alltaf í túninu. Mikið var hann vænn. Við reyktum af honum ganglimina. Þú mátt ekki hneykslast, væni minn. En það tókst svo vel, að ég gat ekki á mér setið. Ég sendi þér nokkra bita. Guð gefi þér gleðileg jól, elsku drengurinn minn. Þín heittelskandi móðir. Það fór um hann hlýr straumur og augu hans urðu rök. Svona var mamma, hugul- söm og góð. Og þegar hann lyfti dagblöð- unum ofan af hinni fábrotnu en gagnlegu jólagjöf, fannst honum, sem hann væri kominn heim í kotið til karls og kerl- ingar.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.