Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1954, Page 12

Heimilisblaðið - 01.07.1954, Page 12
Það bjó tryggð í brosmildum augum hans, en þó átti tryggð- in sín takmörk, ef um eigin hagsmuni var að ræða. Hann hafði sínar eigin skoðanir á félagsskap og hagnýtti sér hann eftir getu. Hann hafði ekkert á móti því, að aðrir ynnu erfiðustu verkin fyrir hann. Fyrir peninga var hann reiðubúinn að svíkja bezta vin sinn, fyrir peninga stofnaði hann lífi sínu í hættu og fyr- ir peninga lá við að hann týndi því eitt sinn. Það atvikaðist þannig: Ég var staddur úti í skógin- um með nokkra Pangwe-negra. Eela var óumdeilanlega foringi þeirra. Fyrst lét hann segja mér til vegar í skóginum og vísa mér á leynigötur hans. Síðar fórum við oft hver sína leið, en komum allir saman að kvöldi. Eitt kvöldið vantaði Eela. Við höfðum verið á hnot- skóg eftir górillaöpum, og nú hafði hann áreiðanlega fundið þá. Ég lét kveikja elda mikla og berja bumbur í sífellu, til að létta honum leitina að okk- ur. En Eela kom ekki. Nóttin leið, og daginn eftir kom hann heldur ekki. Ég lét leita hans allan daginn, en það bar eng- an árangur. Næsti dagur leið, og- enn voru trumburnar barðar. Allt í einu heyrðum við eins og hásróma gelt, sem virtist berast langt að. Ég lét berja trumburnar á sérstakan hátt. Geltið heyrðist aftur, og nú virtist það hafa færzt nær. Og nú heyrði ég, að þetta var ekki hljóð í dýri, heldur aðfram- komnum manni. - Eela! Eela! hrópuðum við. Við heyrðum einhvern svara, hásum, dimmum rómi. Ég hrópaði til manna minna: - Komið! Við verðum að sækja hann. En þá heyrðum við skrjáf. Einhver dróst í áttina til okk- ar. Það var Eela. En útlitið á honum! Þá tók ég eftir bandi, sem hann hafði hnýtt um mitti sér og hann teymdi eitthvað á. Hann reikaði enn nokkur skref áfram. Síðan valt hann um koll og lá hreyfingarlaus. Þetta, sem hann teymdi, ýlfr- aði og spriklaði. Við bárum Eela að eldinum. Líkami hans var allur marinn og rifinn, augun voru þrútin og blóðug, holdflyksurnar löfðu niður úr annari hendinni, en í hinni hélt hann á byssu sinni. Skeftið var brotið af henni. Hann stundi og hjartað sló ört. Ég hreinsaði sár hans og batt um þau. Auðséð var, að hann hafði barizt upp á líf og dauða. Eela var hraustbyggður að eðl- isfari, og því var ég viss um, að hann lifði þetta af. Hann lá endilangur hjá bálinu. Ég dreypti á hann viskísopa, til þess að hressa hann, og það bar þann árangur, að hann fór brátt að hreyfa handleggina. Hann var að lifna við. Nokkr- ar mínútur liðu. Ég spurði einskis, heldur beið. - Ert þú þarna, herra? spurði hann loksins. Síðan benti hann á bandið, sem enn var fast um mitti hans. Þá fyrst hafði ég rænu á að skoða, hvað það væri, sem hann hafði komið með. Það var górillaungi, í mesta lagi nokkurra mánaða gamall, sem lá þarna sprikl- andi í ró og næði og fitlaði við bandið. - Eela vill fá alla pesatana einn, sagði Eela. Þrátt fyi’h það, hvernig komið var fyrir ,,vini“ mínum, gat ég ekki var" izt hlátri. Hann gleymdi öllum þjáningum við tilhugsunina um launin. - Þú skalt fá þá. Ég sagði ekki fleira. Það lék ánægjubros um varir Eela, svo að munnurinn virtist ná lang' leiðina eyrnanna á milli. Hann var sýnilega að hressast. & stakk sígarettu upp í hann, °S hann fór brátt að segja fra- Orðin komu slitrótt og sam' hengislítil. - Þú veizt, herra, að Eela ei sterkur og óhræddur og þykir gaman að fá peseta. Eela veiti hvar N’guarnir (Pangwe-negr' arnir kalla górillaapana N’gu3) hafast við. — En þeir vorU farnir burtu. Þeir höfðu ra^' izt inn í smáþorp og eyðilagt akra negranna. Negrakonurnar höfðu kveinað hástöfum, Þv* að þær höfðu engin ráð haft til að reka þessa skemmdarvarg3 af höndum sér. Eela, veiðimað' urinn mikli, sem hafði þegar svæft marga N’gua svefninum eilífa, hafði ekki verið nmr staddur. En nú var byssa Eela þögnuð. Hún fékkst ekki leng' ur til að ,,tala“. Hún var ónýt- Ég skoðaði það sem eftir var af henni. Hún hafði augsýu1' lega bilað og skotið ekki hlaup ið ur henni. Eela hafði veitt górillunum eftirför og fundið vatnsból þeirra. En hann vai^ að fara varlega, því að dýrin voru svo mörg saman. Karf aparnir ganga á undan og verja hópinn fyrir árásum, en á eftir koma kvenaparnir og böm111’ Eela hefur falið sig uppi 1 tr®’ þaðan sem hann sér greinile£a HEIMILISBLAÐl® [120]

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.