Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 19

Heimilisblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 19
Of ástúðlegur eiginmaður (GAMANSAGA) - Jú, mér fellur vel við hann, eins og þú getur nærri, sagði frú Cameron. Frú Cameron var 19 vetra Sömul, móeygð og frábær fríð- leikskona. Hún var búin að vera í hjónabandi í hálft ann- að ár og hafði allt, sem hún vildi hendina til rétta, allt, sem auga og hjarta girntist, en af- leiðingin var skiljanlega sú, að Fún var ekki ánægð með neitt. - Fellur vel við hann, end- urtók Anna Clark eftir henni. Fn hve þú getur verið and- ■styggileg, Mína, að geta talað Svona kaldranalega. Anna Clark var nýfermd og leit svo á, að ung kona, sem gengið hefði að eiga þann r^ann, sem hún unni, hlyti að vera ákaflega hamingjusöm. ■ Ég get ekki að því gert, Anna mín, sagði frú Cameron kasruleysislega og hallaði höfð- luu upp að mjúku hægindinu, Flæjandi. Maður verður leið- Ur á kökum og kampavíni, þeg- ar til lengdar lætur. Mér dett- Ur stundum í hug, að ég væri ruiklu hamingjusamari ef hann Éarl dýrkaði mig ekki alveg 6lns mikið og hann gerir. - Ósköp er að heyra til þín, Mína! - Það verður þreytandi og tilbreytingarlaust, þegar til ^engdar lætur, eins og þú sérð. ^að væri tilbreyting í því, ef hann kæmi auga á einhverja Salla hjá mér, öðru hvoru. Hann er allt of góður við mig! Sjáðu til dæmis hana Soffíu IJarkin, hún er beinlínis hrædd heimilisblaðið við manninn sinn. Hann er laglegur og tígulegur með svart skegg, eins og ræningjaforingi frá Apenium. Ó, það hlýtur að vera gaman að því, að vera hálf smeyk við manninn sinn! - En hve þú getur talað heimskulega, sagði ungfrú Anna, hálf hrædd við þetta tal. - Ég get vel skilið, að þér sýnist svo, eins og er, svaraði frú Cameron yfirlætislega, en ef þú giftist einhverntíma . . . - Það geri ég auðvitað, svar- aði ungfrúin og kastaði höfð- inu þóttalega til um leið. Það virtist sem henni þætti óþarft að draga það í efa, að hún gift- ist, og það var augljóst, að hana fýsti ekki að lifa ógift. - Nú, jæja, fari svo, þá vil ég ráða þér heilt. Gakk þú ekki að eiga þann mann, sem ekki er annað en bros og andvörp, því að það er svo fjarska væm- ið. Þegar til lengdar lætur leið- ist manni sífellt hunang og mánaskin. Hið eina, sem aðskildi skrautbúnu dagstofuna og við- hafnarklefa frúarinnar, var dyratjöldin, og það hittist nú einmitt þannig á, að Cameron, maður hennar, sat í dagstof- unni og las blöðin og heyrði því allt þetta samtal. Hann beit á vörina og brá litum eftir því sem leið á samræðurnar. Jæja, það var þá svona kom- ið. Mína var orðin þreytt og leið á honum! — Já, — hann var allt of ástúðlegur! Það var þá ágætt, að hann fékk að vita það. Hann skyldi reyna að bæta fyrir þann brest! Hann fleygði blaðinu frá sér og gekk inn á skrifstofu sína. Frúin fór líka skömmu síð- ar út í verzlunarerindum. Hún tafðist nokkuð á leiðinni, en skeytti því ekki. - Karl segir ekki eitt orð um það, sagði hún og tafði góðan hálftíma í við- bót, til þess að athuga mjög þýðingarmikið atriði, sem sé það, hvort henni færi betur að hafa rósir eða feginsblóm á hattinum sínum. - Ég kem nokkuð seint heim núna, sagði hún brosandi, er hún loksins kom inn í borð- stofuna, en þar gekk maður hennar um gólf eins og ljón í búri. - Nokkuð seint! Fullum hálf- tíma of seint, segi ég, rumdi í honum, og það í þeim tón, að kona hans tapaði sér algerlega. Það lítur svo út, sem ég hafi ekkert við minn tíma að gera. - Karl! - Ég hef nú þolað þetta um- yrðalaust nógu lengi og segi þér það blátt áfram, að ég ætla mér ekki að þola það fram- vegis, sagði hann með þrum- andi röddu. Síðan vék hann sér að þjónustustúlkunni og mælti: - Þér sjáið um, að mat- urinn verði tilbúinn klukkan sex á morgun, Jóna, hvort sem frúin verður heima eða ekki! Með þessa úrlausn hvarf stúlkan fram í eldhúsið, grát- andi. Frúin settist til borðs, blóð- rjóð upp í hársrætur, og sagði svo með uppgerðarró og þó hálfum huga: - Karl! Ber nokkra nauðsyn til að reita mig til reiði í áheyrn þjónustustúlkunnar ? [127]

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.