Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 20

Heimilisblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 20
- Já, það er einmitt rétta orðið. Þegar húsfreyjan gætir ekki skyldu sinnar, ber nauð- syn til að segja henni til synd- anna. Viltu gera svo vel að rétta mér eina brauðsneið? Þetta truflaði frúna og gerði hana miður sín í viðskiptun- um við mann sinn. Hún var slíkum rifrildisköstum óvön, og eftir því sem á leið, versn- aði það þó betur. Bóndi henn- ar fann sér alltaf fleira og fleira til útásetningar varð- andi matinn, og hann gaf konu sinni meira að segja í skyn, að henni væri nær að halda sig heima og gæta heimilisins, heldur en að vera að slæpast á milli verzlananna. Þegar þau voru loks komin að eftirmatnum á þennan óvenjulega hátt, var dyrabjöll- unni hringt. - Það er víst hún mamma og Lísa frænka, sagði frúin og stóð upp frá borðinu, þær verða hér í kvöld. - Ekki hef ég beðið þær um það, sagði hann hastur. Frúin rak upp stór augu, orðlaus af undrun. - Er ekki von að ég segi það, sagði hann og barði höstugt í borðið. Er það ekki hálf lúa- legt að fá ekki að vera í friði og næði eitt einasta kvöld? - Ég — ég lofaði þeim, að þú kæmir með okkur í leikhús- ið í kvöld, sagði hún með hálf- um huga og brá litum. - Hvað heyri ég! Leyfist mér að spyrja, hver hafi gefið þér heimild til að lofa þessu? spurði hann háðslega. Held- urðu annars, að ég sé ekki ann- að en viljalaust verkfæri, eða hvað? - Verðurðu þá ekki heima hjá okkur, Karl? Heldurðu, að þú gerir það þó ekki að minnsta kosti? - Nei, svei mér ef ég geri það! sagði hann og stóð upp. Ég ætla mér í klúbbinn í kvöld. Að svo mæltu þaut hann út úr stofunni með slíkum asa, að hann var næstum búinn að fella tengdamóður sína um koll í ganginum. Þegar hann gekk niður þrep- in, skömmu síðar, hugsaði hann með sér: - Það var ann- ars gott, að ég komst af stað. Ef ég hefði verið stundarkorni lengur,hefðu tár hennartruflað allt saman. Vesalings Mína! Nú, jæja, svona vildi hún að það væri. Klukkan var rúmlega tólf, er .hann kom heim, og hafði það aldrei borið við áður, að hann kæmi svo seint heim, þegar hann var einn. - Hvað er að tarna? Þú ert á fótum enn! sagði hann hast- ur, er hann kom inn í svefn- herbergið og sá konu sína ganga þar um gólf, hrygga í skapi. Það er bezt að stemma stigu fyrir þessum ósið í eitt skipti fyrir öll! - Ég var svo hrædd um þig, Karl, sagði hún blíðlega, þótt hún hnuggin væri. - Hrædd! endurtók hann eft- ir henni með þjósti. Heldurðu, að hann Jón Markin líði kon- unni sinni að vera á fótum og bíða eftir honum fram á miðj- ar nætur? - En heldur þú, að mig langi til að þú sért eins og hann Jón Markin, Karl? Nei, fyrir alla muni, það vil ég ekki, sagði frúin og fór nú að gráta fyrir alvöru. - Nú, þú vildir það ekki? [128] sagði hann og gat naumast varizt hlátri. Ég hélt í raun og veru, að þér þætti dálítið gaman að því, að vera hálf smeyk við manninn þinn, og þar á ofan veiztu þó, að sífellt hunang og mánaskin er leiði- gjarnt, þegar til lengdar læt- ur, það er allt of væmið, eða er það ekki, Mína? Frú Cameron varð hverft við, og hún sagði: - Heyrðirðu það, sem ég var að segja í dag? - Já, það gerði ég, hæstvirta frú Cameron, og síðan hef eg leitazt við að haga framkomu minni eftir þínu geði. - Æ, gerðu það ekki framar, elsku Karl minn, sagði hun með titrandi vörum og tar- votum biðjandi augum. gerðu það ekki framar! Það er ekkert gaman að því að vera hrædd við manninn sinn. - Jæja, alveg eins og þér syn- ist, svaraði hann. En þú varst þó á allt annarri skoðun í dag- - Æ, það var heimskulegt bull, allt saman, elsku Karl minn. Ég hef setið hér, alb þetta kvöld, og grátið mér til óbóta, og um leið reynt að brjóta heilann um það, hvei ósköp það gætu verið, sem valdið hefðu þessari breytingu á þér; og svo var þetta ekki annað en látalæti hjá þér? - Ekkert annað en látalsetii samsinnti hann. Svo kystust þau og sættust heilum sáttum. Hveitibrauðs- dagar þeirra hófust að nýju’ bjartir og glaðir. En frú Cameron kvartaði aldrei framar um það, að Kar Cameron væri of ástúðlegur eiginmaður. Sj. J. þýddi lausl. HEIMILISBLAÐI®

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.