Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1954, Qupperneq 21

Heimilisblaðið - 01.07.1954, Qupperneq 21
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON LOFTLEIÐIR 10 ÁRA UTÍMA flugtækni á sér ekki langa sögu. í rauninni má segja, að flugtækni hafi litla eða enga þýð- lngu haft, fyrr en á heimsstyrjaldar- úrunum 1914—1918, en þó aðallega undir stríðslokin. Forsaga flugsins Var tilraunaskeiðið, þar sem menn fálmuðu sig áfram í myrkri marg- vislegra útreikninga, sem misjafn- *ega stóðust. Fyrsta póstflug var farið árið 1918 milli New York og ^Vashingt on. Charles Lindbergh gat Ser heimsfrægð árið 1927, er hann flaug í einum áfanga frá New York ttl Parisar. Árið 1939 var fyrst efnt til áætl- Unarflugs yfir Atlantshaf, frá New ^°rk til Southamton. Allt má þetta teija til brautryðjendastarfsins. Er Vlð minnumst 10 ára starfsafmælis Loftleiða h.f. hinn 10. marz, s.l., er kað að vísu gelgjuskeið meðal ^annsævi, en það er þó brautryðj- endaskeið og blómaskeið íslenzkr- ar flugstarfsemi. Þeir menn, er áttu f^Umkvæði að stofnun félagsins, Voru ungir og eignalausir. Þeir áttu 1 rauninni ekkert nema eina hug- sl°n skýjum ofar, en þær borgir, Sem byggðar eru í skýjum, þykja ekki líklegar til staðfestu, jafnvel Samkvæmt Biblíunnar kenningum, Sem þó ræðir um jafn-jarðneskan grUndvölI og sandinn í sambandi v'ð sína byggingarlist og fallvelti ^árra kastala. Hugsjónir, framtak °g fórnfýsi brautryðjendanna glæddi a^Uga fjársterkari manna, og þeir v>ldu einnig færa íslenzkri menn- lr>£u og framförum nokkrar fórnir. Starfsemi Loftleiða h.f. hefur frek- ar mótazt af hugsjónum og framtaki en fjármagni eða öruggri ágóðavon. ^élagið hóf fyrst flug til ýmissa staða hér á landi, sem afskekktir v°ru og einangraðir, en það rauf 1 raun og sannleika einangrun þjóð- armnar, er það keypti fyrstu flug- yslina, sem farið gat örugglega landa a milli og haldið gat uppi áætlun- arflugi. ^yrstu tíu ár mannsævinnar eru kernska, en löng starfsemi flugfé- ^eimilisblaðið lags í dag. Því er ástæða til að láta slíkt afmæli félags ekki hverfa í fullu aðgerðaleysi í gleymskunnar ómælisdjúp. Félagið hefur ekki farið varhluta af dægurþrasi og rígi, og fjárskortur hefur hamlað framtaki þess. Til ríkis og bæjar hefur það greitt skatta og skyldur, þótt allar Norðurlandaþjóðirnar hafi á sama tíma styrkt flugsamtök sín með beinum fjárframlögum, en ekki ætl- að þeim að greiða þungbær gjöld vegna starfseminnar. Sem dæmi mætti nefna, að SAS, sem Danir, Norðmenn og Sviar eiga sameigin- lega, hefur verið styrkt með bein- um ríkisstyrkjum og fjárframlögum, þar til nú rétt fyrir skemmstu. Síð- astliðið ár varð hagnaðurinn ca. krónur 35.000.000, en honum er öllum varið til afskrifta af flugvéla- kosti félagsins. Þetta er nauðsyn, sem af því stafar, að flugvélateg- undir eiga sér skamma ævi, vegna örrar þróunar flugtækninnar, enda gerast hvergi slíkar framfarir á jafn- skömmum tima. Flugvél, sem keypt er í ár fyrir milljóna tugi króna, getur reynzt lítils virði á næstu ár- um, þar sem með henni verður ekki keppt við flugfélög, sem eiga yfir allri nútímatækni, fjármagni og nýj- asta flugvélakosti að ráða. Þótt flugfélögin hafi notið vin- semdar og skilnings ríkisstjórnar og Alþingis á ýmsa lund, skortir mjög á, að svo hafi verið búið í haginn fyrir flugfélögin, sem nauðsyn kref- ur. Ótilneydd fara þau ekki fram á opinbera styrki, með því að starf- semin er ábatavænleg, en þau þyrftu að njóta skattfrelsis til þess að safna fjármagni, er svarar til fram- fara á sviði flugtækninnar. Látum liggja á milli mála, þótt einhverjir skattar yrðu greiddir af beinum tekjum, en fráleitt er og flugfélög- unum um megn að greiða veltu- útsvar, með því að veltan getur verið mikil, þótt hagnaðurinn sé enginn. Nú sem stendur á hvort félagið eina ,,Skymasterflugvél“, DC4, sem [129] kosta ca 10—12 millj. kr. Bæði þyrftu félögin að eignast ,,Cloud- master-vél“ DC6, sem er að flestu leyti fullkomnari og hentugri en hinar eldri gerðir. Skymaster-vélar félaganna, sem nú eru gamlar og að einhverju leyti úr sér gengnar, eru nú seljanlegar fyrir brot af því verði, sem þær voru keyptar fyrir, en ,,Cloudmaster-vélar“ kosta hins vegar 20—25 millj. kr. Þetta dæmi eitt ætti að opna augu manna fyrir þróunarþörf flugfélaganna og sanna þeim, að reikningslegur ágóði svarar á enga lund til fjárþarfar þeirra og nauðsynjar á að fylgjast með þró- un tækninnar og festa kaup á hag- kvæmustu flugvélagerðum. Flugflutningar farþega og farang- urs fara stöðugt í vöxt, enda eru flugslys tiltölulega miklu færri, en slys farartækja á jörðu niðri eða á sjó. Flugið á framtíðina. Lega íslands skapar góð skilyrði á ýmsa lund til flugstarfsemi. Þjóðin má ekki ætla, að íslenzku flugfélögin verði öflug á heimsmælikvarða fyrst í stað, en þau geta svarað þörfum hennar og þó nokkuð umfram það. Veldur hver á heldur, og hvers skiln- ings íslenzk flugstarfsemi nýtur frá opinberri hálfu í framtíðinni. Fjár- magnið er talið „afl þeirra hluta, sem gera skal“, þótt hugsjónir og dugnaður hafi reynzt Loftleiðum h.f. notadrjúgt veganesti, — og fari hvort tveggja saman, þarf ekki að kvíða framtíðinni, en starfsskilyrðin mótar löggjafinn, frekar en stjórn- endur flugfélaganna. „Flug“. r 'A TILKYNNING Þetta er síðasta blað, sem sent verður til þeirra, sem ekki hafa svarað póstkröfum og þœr því komið ógreiddar aftur til af- greiðslunnar óritaðar: „ekki vitjað“. L___________________)

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.