Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1954, Side 25

Heimilisblaðið - 01.07.1954, Side 25
um og settist svo aftur. Hann varð smám saman ákafari og ákafari, hann reyndi að telja dúfurnar á fluginu, hann sveið í augun og tárin streymdu úr þeim af áreynslu, hann fór að verða ruglaður og að lokum vissi hann varla, hvar hann var eða eftir hverju hann var að bíða eða hvers vegna hann var að reyna að telja þessar hvik- látu dúfur. Hann tók heldur ekki eftir, þegar riddari á stór- um, kolsvörtum hesti nam staðar fyrir aftan hann og steig með hægð úr söðlinum. - Hleyptu mér inn! skipaði Hddarinn. Styrbjörn, sem enn glápti upp í loftið á fljúgandi dúfnaskarann, breiddi til varn- ar út sterklega handleggi sína uieð höndunum, sem voru eins stórar og sleggjur. Riddarinn sagði: - Ertu genginn af vitinu, Styrbjörn? Eða manstu ekki lengur eftir mér? Hvenær hef- ur þú getað varnað Dauðanum inngöngu? Þá skildi Styrbjörn, að Prinsessan hafði leikið á hann. Og hann kveinaði og bað: - Æ, kæri Dauði, getur þú ekki beðið með að sækja prins- lnn unga, þangað til ég hef tal- dúfurnar? Ef ég sleppi þér lr>n, áður en því er lokið, hef eg rofið heit mitt, og þá þarf Prinsessan ekki lengur að standa við sitt heit. Dauðinn svaraði: - Það er þegar farið að rökkva, Styrbjörn, og bráðum sér þú dúfurnar ekki lengur. ^leyptu mér inn. En Styrbjörn kveinaði og bað: ■ Æ, kæri Dauði, ef ég hleypi bér inn í höllina, hefur prins- heimilisblaðið essan leikið á mig. Þá munu menn segja, að ég sé eins heimskur og ég er sterkur, og þá hneisu þoli ég ekki. Ég braut upp klettinn með sverði mínu, svo að jörðin nötraði, ég hrakti villisvínahjörðina á flótta eins og héraflokk, ég reið á baki galtapabba yfir ána straum- hörðu, ég kleif klettinn bratta og stökk yfir gjána djúpu, og allt þetta gerði ég til þess eins að leika á prinsessuna. Og nú er það hún, sem leikur á mig. Sú hneisa verður mér að bana. Getur þú ekki snúið hesti þín- um og riðið burtu héðan? Dauðinn svaraði: - Ég kom hingað, til þess að sækja prinsinn unga, en ef ein- hver vill af frjálsum vilja koma með mér í staðinn fyrir hann, skal ég snúa við hesti mínum og ríða brott héðan. - Æ, hver ætli verði til þess ? spurði Styrbjörn. Dauðinn svaraði: - Það verður enginn annar en þú sjálfur. Hann lagði hönd sína á öxl Styrbjarnar. Og sjá, risinn kýttist saman og varð eins lít- ill og barn, já, miklu, miklu minni en litla prinsessan. Dauð- inn hóf hann upp í söðulinn fyrir framan sig og reið á brott. En prinsessan gekk inn í her- bergi prinsins, og hann hafði ekki fyrr komið auga á hana og þekkt hana, en hann stökk upp úr rúmi sínu, hress og heil- brigður, því það var einungis þráin eftir prinsessunni, sem hafði lagzt svo þungt á hann, að hann varð fárveikur. Þegar sumarið kom aftur, og ný lauf höfðu vaxið á eikinni og ný blóm í rósagarðinum, hófst aftur geysimikil skrif- íinnska. Brátt flugu sjö þús- und dúfur með rósablað undir vængnum og sjö þúsund dúf- ur með eikarlauf undir vængn- um út um víða veröld og boð- uðu öllum þær fagnaðarfréttir, að prinsinn og prinsessan ætl- uðu að halda brúðkaup sitt. En það voru líka síðustu bréf- in. Eftir það fékk eikin að hafa laufin sín og rósagarðurinn rósirnar sínar, því að hverjum áttu þau að skrifa eftir það, prinsinn og prinsessan? Á græn lauf og rauð rósablöð? Engum. Saga frá riddaratímunum. [133]

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.