Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1954, Síða 29

Heimilisblaðið - 01.07.1954, Síða 29
- Já, sannarlega óska ég þér til hamingju, Margrét, af öllu hjarta. - Þú verður að viðurkenna, flýtti hún sér að segja, að við eigum vel ! saman. Við eigum svo margt sam- • eiginlegt. Við flytjum til Edinborg- : ar, þegar Euen fær nýju stöðuna, Sem hann á von á. Þú veizt, að hann á að vinna í Wallace-stofnuninni. Pabbi hefur lofað okkur yndislegu húsi. Það búast allir við, að Euen verði að nokkrum árum liðnum að- : alprófessorinn við Wallace-stofnun- ina. - Þið giftið ykkur auðvitað bráð- j lega? Hún kinkaði kolli. - Já, í næsta mánuði. Þú mátt i tíl að koma í brúðkaupið mift. Eg býð þangað öllum gömlum að- dáendum mínum. Það verður skemmtilegt, heldurðu það ekki? Allt í einu var eins og hulu væri svipt frá aúgum hans, og hann sá yfirborðshátt hennar og fordild. En bað var aðeins augnablik, svo sagði hann, rólegur og alvarlegur í bragði: - Ég bið þig að snúa þér til mín, ®f ég get einhverntíma orðið þér að liði, Margrét. Hún þrýsti létt handlegg hans og ^tlaði að segja eitthvað, en í sama bili heyrði hún í bíl fyrir utan, og hún flýtti sér út að glugganum. - Það er Euen! Við ætlum að leika golf eftir kvöldmat. Hún sneri sér að honum, glöð í bfagði, og rétti honum höndina. Ef fil vill fann hún til ofurlítils sam- vizkubits. - Vertu sæll, Duncan. Þú skalt ekki fylgja mér út. Við þurfum að flýta okkur áður en dimmir. Hann stóð við gluggann, unz þau voru ekin burtu. Hann reyndi að kerða sig upp og horfa á sigur- krosið á andliti OvertonS, með- an hann hjálpaði Margréti inn í kilinn. ETTA sama kvöld hafði Duncan ákveðið að fara með Önnu á sinfóniska hljómleika. En nú hringdi kann til frú Galt og bað hana að koma skilaboðum um, að hann gæti ekki komið. Um hálfellefuleytið kom Anna allt 1 einu óvænt inn í herbergi hans. Éún tók af sér hattinn og lét fall- HEIMILISBLAÐIÐ ast niður í stól. Síðan tók hún fram dagblað og fór að lesa í því, án þess að skipta sér af honum. Hann herti sig upp og spurði: - Var gaman á hljómleikunum? - Ég var þar ekki! Það fór ekki framhjá honum, að framkoma henn- ar var undarleg. Þér þurfið ekki að vera kurteis mín vegna. Verið eins og yður líkar bezt. Hann var sýnilega reiður, og hún virti hann fyrir sér, án þess að sýna nein svipbrigði. - Hlustið á fréttirnar í dagblað- inu: ,,Það mun sjálfsagt vekja ánægju margra, að í gærkvöldi opin- beruðu trúlofun sína á heimili Inglis rektors ungfrú Margrét Scott og doktor Euen Overton. Ungfrú Scott er frænka Inglis rektors og hefur tekið mikinn þátt í samkvæmis- lífinu. Hún er, eins og allir vita, dóttir Sir John Scotts, eiganda Stinchar Lodge“. Hún henti blaðinu kæruleysislega frá sér. - Mér verður illt af að hugsa um þetta. Þér hafið aldrei elskað þessa stúlku! Þér voruð ástfanginn af draumsýn. Þér settuð hana í há- sæti og félluð á kné og tilbáðuð hana. Slíkt skeður alls staðar í heim- inum. í föðurlandi mínu dreymir syni skógarhöggsmannanna um ,,prinsessuna“ á óðalinu. Hann horfði hvasst á hana, en hún hélt áfram að tala: - Hún er bara hégómleg, ímynd- unarveik og hjartalaus táta! Hvernig haldið þér, að yður hefði gengið að vinna, ef þér hefðuð þurft að þola heimskandi félagsskap hennar og metorðagirnd . . . - Anna! Duncan spratt á fætur, gráfölur af reiði. - Já, hamingjunni sé lof! Hún bandaði honum frá sér með hend- inni. Hefði ég ekki skorið upp hand- legg yðar, munduð þér slá mig í rot þegar í stað! Og ef ég stæði ekki í þeirri trú, að bak við tilfinninga- sýki yðar fælust góðir eiginleikar, mundi ég fara leiðar minnar og sjá yður aldrei framar. Hann horfði hjálparvana á hana, um leið og hann settist á stólinn. - Þetta er strax skárra, sagði hún með allt öðrum málhreim. Ég veit, að yður hefur liðið illa. Ég veit, [137] hvernig tilfinningar yðar hafa verið. Hún brosti napurlega. - En þér skuluð ekki taka yður þetta svona nærri. Hann verðut ekki sérstaklega hamingjusamur. Og það verður hún heldur ekki. - Anna. Hættið! Hann fól andlitið í höndum sér. - Ungfrú Dawson reyndi að fremja sjálfsmorð í gærkvöldi, sagði hún og lagði áherzlu á hvert orð. - Hvað segið þér? Hann leit upp örvæntingarfullur, en svo varð hon- um ljós alvaran bak við orðin, og það var eins og honum hefði verið gefinn löðrungur. Anna kinkaði kolli. --Já, það er leiðinlegur atburð- ur. Getið þér hugsað yður, að hjúkr- unarkona á sjúkrahúsi taki inn of stóran skammt af svefnlyfi? Við dældum upp úr henni þegar í stað. Það hefur ekkert kvisazt. Hún var strax send til fjölskyldu sinnar í Perth. Hún hefur sloppið vel, þótt ekki sé hægt að segja, að hún sé jafn góð og áður. Duncan starði á Önnu. - Það var allt í óreiðu á herbergi hennar eftir þennan atburð. Ég rakst þar á þessi bréf, og mér þótti ráð- legt að geyma þau til betri tíma. Hún henti til hans sendibréfa- bunka, og hann opnaði þau sein- lega. Þau voru frá Overton, og á nokkrum mínútum komst hann að innihaldi þeirra. - Já, sagði hún og horfði i augu hans. Nú höfum við gott tak á þess- um fína vini yðar. Það verður gam- an að sjá hann sprikia í netinu. - Nei! - Hvers vegna ekki? Hann á það þó skilið. Minnizt lygaþvættingsins, sem hann hefur útbreitt um okkur, þetta dyggðablóð, sem leiðir hjúkr- unarkonu afvega! Hann hristi ákveðinn höfuðið. - Nei, það get ég ekki gert, Anna! Aldrei! Það yrði Margréti um megn. Ég vil berjast við Overton, en ekki á þennan hátt. Hún horfði á hann með saman- kipruðum augum. Svo breytti hún allt í einu um skoðun. - Það getur vel verið, að þér hafið á réttu að standa. En mig hefur lengi langað til þess að sjá yður jafna sakirnar við þennan náunga.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.