Heimilisblaðið - 01.07.1957, Síða 2
SKUGGSJA
Hæsta hús i heimi
Hverjum tilheyrir eiginlega hæsta hús heimsins
— skýjakljúfurinn Empire State Building í New
York? Kjánaleg spurning, mun margur segja, það
getur ekki tilheyrt neinum einstakling, öllu heldur
mun félag, stórfyrirtæki, ef til vill New York borg
eða jafnvel ríkið eiga þessa risabyggingu. Þessi him-
inháa bygging, 102 hæðir, þar sem 20000 manns
starfa og þar sem 65 tonna sjónvarpsstöð hvílir ofan
á sjálfu þakinu, 440 metra yfir jörðu, tilheyrir raun-
verulega, þótt lygilegt sé, frá því fyrir stuttu síðan,
einum manni, og hann er meira að segja ekki New
York-búi, heldur býr hann í Chicago, Mr. Crown
að nafni. Ef þessi húseigandi óskaði persónulega að
senda leigjendum sínum nýárskveðju á póstkortum,
þá yrði hann að setjast niður við skriftirnar strax
um hásumarið.
Afbrotamenn í sumarleyfi
Belfast (írlandi): — Afbrotamenn, sem afplána
margra ára dóma í fangelsinu í Belfast, eiga á þessu
ári í fyrsta sinn að fá sumarleyfi. Þegar hefur fang-
elsið árum saman veitt stórglæpamönnum jólaleyfi
gegn drengskaparvottorði fanganna. Ekki einn ein-
asti fangi hefur misnotað þessi hlunnindi eða brugð-
izt trausti fangelsisyfirvaldanna. Vegna þessarar
góðu reynslu á nú að gera tilraun með að leyfa
föngunum að fara einnig í sumarfrí.
Bóndinn og sprengjan
Nikosía (Kýpur): — Bóndinn Nikodemus Jorjos
þurfti að fara til London í viðskiptaerindum. Þá
mundi hann allt í einu eftir, að hann var enn ekki
búinn að plægja hinna geysilega stóra melónuakur
sinn. Hann vildi ekki að konan hans ynni þetta
erfiða verk, þess vegna datt honum gott ráð í hug.
Bóndinn skrifaði á póstkort, sem hann setti ekki í
umslag, til konu sinnar: „Gerðu svo vel að plægja
ekki stóra melónu-akurinn, því þú veizt ekki, hvar
sprengjan, sem liggur þar, er niðurgrafin.“ Brezka
bréfaeftirlitið las auðvitað kortið og kom því til
leiðar að hermennirnir voru látnir plægja akurinn,
til þess að finna hina ímynduðu sprengju.
Sjimpansar synda eins og hundar
Spánski dýraveiðarinn Lois de Lassaletta skrií^
að hann hafi veitt þvx eftirtekt, að sjimpansa-aP^
geti synt. Hann gat fylgzt með því úr bát sínu'r'!
þegar fjórir sjimpansar syntu líkt og hundar r
Rio Benito í spönsku Guineu.
Hingað til hefur verið álitið, að mannapar g*8
ekki synt, heldur yrðu þeir fyrst að læra þessa *'
eins og mennirnir.
Sjólfvirki vakir yfir blóðþrýstingnum
Fx-amvegis mun bjalla hljóma í sjúkrahús^
Ameiúku, þegar hættulegar breytingar verða á b*°
þrýsting sjúklinganna, og merkjaljós kveður hju^r
0b'°'
■P
unarliðið á vettvang. Fyrirtæki eitt í Elyra,
hefur hafið fjöldaframleiðslu á nýju tæki. Þetta
mælir með reglubundnu millibili blóðþrýsting síu
lingsins. Strax og ákveðnu hámarks- eða lágmar^
stigi er náð í hinu sjálfvirka tæki, gefur það frU 5
aðvörunarmerki.
Afskorin blóm haldast lengur ,
Einkaréttindastofnunin í Vestur-Þýzkalandi u
ur nú veitt einkaleyfi fyrir varanleika afsker*
blóma. Samkvæmt skýrslu um þetta efni notar 11,9 j
ur til þess blöndu úr 95 prósent „Glukose"
prósent kamfórudropum. Sé um það bil 0.5 Pr°sS
upplausn af þessu efnasambandi sett 1 vatn, á v
anleiki afskorinna blóma að aukast að miklum &
Hingað til hafa ýmsar aðferðir til að auka v8rS,t{
leika afskorinna blóma misheppnast. Á þennan bu
er notuð efnafræðileg aðferð. í þessu tilfelli er
ig mælt með því, að skera blómstöngulinn við °8
á ská, með beittum hníf, til þess að halda inns°P
opinu, sem oft vill verða límkennt, hreinu (en ^
ekki að nota skæri, því þau kremja hinar viðkva3
æðar jurtarinnar).
tt •__•!• i i Kemur út annan hvern ,4
rleimmsblaoio uði tvö tölublöð saman,
blaðsíður. Verð árgangsins er kr. 50,00. í lauS® -jj,
kostar hvert blað kr. 10,00. Gjalddagi er 14-
Útgefandi: Prentsm. Jóns Helgasonar. Utanáskr ^
Heimilisblaðið, Bergst.str. 27, Reykjavík, Póstb.