Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1971, Page 20

Heimilisblaðið - 01.12.1971, Page 20
ollu hræðilegar fréttir mikilli skelfingn í bænum. Timur Lenk, Lnn voldugi tatara- höfðingi, var að leggja undir sig Persíu og þokaðist áfram í áttina til Shiraz. Timur Lenk, eða Tamerlan, eins og hann var líka kallaður, var grimmur drottnari, þó að hann hefði einnig vit á list og vísindum, og orðrómurinn sagði, að hann ætlaði að jafna Shiraz við jörðu. Brátt stóð liann með her sinn fyrir utan hina dauðadæmlu borg, og íbúarnir gengu nú til móts við hann til þess að biðja um náð. Hafiz og Patme voru einnig með í fólksfjöldanum, og þeim var ýtt fram fyrir Timur, því að allir vissu, að Mongólahöfð- inginn mat hin fögru ljóð Iíafiz mikils. Timur horfði einnig með velvild á gamla skáldið. „Það er tvennt, sem ég dáist að,“ sagði hann náðarsandega, „sigrum mínum og ljóð- um þtnum! Farðu með eitt þeirra fyrir mig.“ Hafiz hikaði í sömu sporum. Hvað vísu átti hann að velja? Þá hvíslaði Fatme: „Rósarvísuna,“ og skáldið brosti, því að hann fékk um leið góða hugmynd. Hann mælti fram hárri raustu: „Vegna listar þinnar og vizlcu mun ég' þyrma 6œnum“. „Láttu rósina blómgast á runnanum, gleðstu yfir henni þar, ’ié hún slitin, visnar hún brátt, — brjóttu eigi rósina björtu!“ „Þetta er fallegt og rétt,“ sagði Timur Lenk, „þakka þér fyrir, Hafiz. Einnig ég læt rósina blómgast á runnanum og brýt hana ekki.“ „Þá er allt gott,“ sagði Hafiz, „þá eyði- leggur þú ekki þessa borg. Því að Shiraz er rós Persíu!“ Andartak brá fyrir skugga á andlliti her- foringjans. Svo brosti hann. „Þú ert vitur, Hafiz,“ sagði hann, „vegna listar þinnar og vizku mun ég þyrma bæn- um. Ilann skakl kokmast hjá eyðileggingu.“ Mikil fagnaðaróp kváðu við er hann sagði þessi orð. Og þannig vildi það til, að Hafiz og fósturdóttir hans björguðu bænum sín- um frá tortímingu. Það gerðist samkvæmt sögusögninni í lok fjórtándu aldar, en enn þá er Iiafiz, rósaskáldið, talinn vera mesta ljóðskáld Persíu. 240 H.BI.M I L ISKI, A O 1

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.