Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1971, Page 31

Heimilisblaðið - 01.12.1971, Page 31
horn að taka; og að við fánm ekki haldið rétt okkar fyrir honum, er eins víst og himininn er uppi yfir höfðinu á okkur. Þér hafði sjálfar séð það í dag, hvernig mar- skálkurinn hló beint framan í náðugan hús- bóndann ... En nú skal ég segja yður nokk- uð,“ hún lækkaði röddina og hvíslaði svo lágt, að Líana aðeins heyrði: „Náðuga frú, það er til dálítið skriflegt, það er miði, sem náðugur liúsbóndinn skrifaði staf fyrir staf í minni viðurvist, og hún“ — hún benti með hægri hendinni á konuna í riiminu — „hún liefur miðann í hendinni. Það er ofur- lítið hylki, sem lítur út eins og bænabók með silfurspjöldum, og í þeim liggur blaðið. Vesalings blessuð konan, ó, hvað það er átakanlegt, að menn skuli hafa borið það á hana, að hún væri manni sínum ótrii; og nú er hún búin að liggja í 13 ár, og hefur gætt miðans með meiri nærgætni en eiukabarns síns, því hann er það síðasta, sem lmn fékk hjá lionum, og hún óttast, að hver, sem nærri henni kemur, vilji taka liann af sér.“ Unga konan minntist nú þeirrar stundar, er hirðpresturin hafði gripið eftir hylkinu. Nú skyldi hún hið nístandi angistaróp sjúkl- ingsins, og livers vegna frú Sehön hafði verið svo einbeitt, þegar hún gekk á milli prestsins og veiku konunnar. Það fór titr- ingur um hana, er hún hugsaði til þess, að milli þessara úttærðu, krepptu fingra lá vottorð, sem beið þess, að það væri notað, og presturinn hafði haft það milíi hand- anna án þess að hafa grun um það. „Ég skal segja yður, náðuga frú, áður en óhamingjan og neyðin dundu yfir, leit vesalings konan ekki við mér,“ hélt frú Sehön áfram. „Þegar húsbóndinn sálaði flutti hana hingað, var svo strangt eftirlit- ið, að enginn mátti nálgast indverska húsið nema á hnjánum. Við þorðum naumast að horfa á hana, auk heldur þá yrða á hana, þegar hún hljóp léttfætt eins og hind eftir trjágöngunum og var svo yndisleg ásýnd- um, að menn gátu freistast til að eta hana af eintómri ást! Ég er viss um að aðra enis fegurð sjá menn ekki á hverjum degi.“ Hún gat ekki haldið áfram lengur fyrir gráti, en lagfærði eins og umhyggjusöm móðir hrafnsvörtu lokkana, sem liðuðust of- an á brjóstið á sjviklingnum, er aðeins bærð- ist lítið eitt. „Já, þessum fléttum hefur hann oft hald- ið í liendi sér og margsinnis kysst þá,“ sagði hún andvarpandi og staðnæmdist við rúmið. „Þá voru þeir ætíð skreyttir perl- um, rúbínum og gulldjásnum; en ég hef orðið að afhenda marskálkinum það allt saman. Hún hafði franska herbergisþernu, sem hún var góð við eins og engill, en þessi gulleita norn launaði lienni illa. Það var hún, sem bjó til söguna um það, að vesal- ings konan væri í tigi við Jósep hestasvein, og kom húsbóndanum, sem orðinn var veik- ur, til að trúa því. Og fyrir það tók hún á móti nokkur þúsund dölum þegar hiin fór. Ég mun aldrei gleyma gráti frúarinn- ar og kveinstöfum út af því að fá ekki að sjá þann sem hún unni af öllu hjarta, og nú vildi ekki lengur neitt með hana hafa. ... I fulla 6 mánuði sat hún sem fangi hér í húsinu. .. Svo fæddist Gabríel, og frá þeim degi var hin harðlynda, grátgjarna frú Sehön álitin refsinorn í indverska hús- inu. .. Ég var líka oft hjá sjúklingnum, þegar maðurinn minn fékk svimaköstin, því þá varð ég að taka við verki hans. Þá nefndi ég ekki svo sjaldan nafn hennar, þó það væri ekki nema bara til að minna hann á hana, og segja honum, að allt, sem menn hefðu talið honum trú um, væri svívirðileg lygi frá upphafi til enda, og að honum væri fæddur sonur; en ég varð jafnharðan að éta það ofan í mig aftur; því hversu góður og blíður sem hann var, þegar ég var lijá honum, þá skriftaði hann allt fyrir aðstoð- arprestinum, þegar hugarvinglið ásótti hann, og þá mundi ég hafa verið rekin á dyr mis- kunnarlaust, og vesalingarnir í indverska húsinu hefðu þá ekki liaft neinn, sem þau gætu treyst.“ Líana greip hönd hennar og þrýsti hana innilega, en frú Schön varð eldrauð og leit óttaslegin niður fyrir sig, þegar mjúku, fxn- gerðu fingumir á ungu konxmni snertu lirjúfu hendina hennar. „En nú lá húsbóndinn sálaði alveg fyrir dauðanum,“ hélt liún áfram vilcnandi. „Iíerra marskálkurinn og aðstoðarprestur- inn urðu að fara til þorpsins til að veita kaþólska prinsinum, Adolf, síðustu aðstoð —■ og ég er viss um að það hefur verið Guðs HEIMILISBLAÐIÐ 251

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.