Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1971, Qupperneq 35

Heimilisblaðið - 01.12.1971, Qupperneq 35
in væri þegar komin á leiðina til Rómar. Það var ekki nokkur efi á því, og einmitt þess vegna var hann að sýna hana við hirð- ina með þessum litla reigingi, eins og hann vildi segja með því: „sjáið þið nú til, ég hef ekki verið svo fjarska smekklaus í val- inu; jafnvel þó þetta ætti aldrei að verða nema uppgerðarskrípaleikur, hef ég þó ekki brotið í bág við fegurðartilfinningu mína. Ykkur er nú bezt að líta á þessa konu, sem þið hafið hæðst svo mikið að, áður en ég læt hana fara heim til sín.“ En menn tóku ekki eftir, live heitt og innilega hann þrýsti handlegg hennar allt í einu að sér, eins og hann sæi eftir því að hafa farið með ungu konuna sína þaugað, þar sem hún varð að þola öll þessi forvitnu og áfergislegu augu; og menn heyrðu ekki blíðmæli þau, sem hann livíslaði að henni, eða skildu hann, þegar hann með hátíðlegu yfirbragði kynnti hana nokkrum eldri kon- um sem konu sína, og álitu, að hann gerði það í skopi, eða að það væri sérvizkubragð af honum til að skemmta mönnum með, og allir urðu að taka þátt í þessu með honum, nauðugir viljugir, bæði unga konan við hlið hans og aðrir. Porspilið þagnaði allt í einu, áhorfend- urnir stóðu hreyfingarlausir og öllum var litið til hliðardyranna, sem hertogafrúin lilaut að koma inn um. Vængjahurðin var opnuð hátíðlega og hennar hátign kom inn með báðum prinsunum og nokkrum liirð- meyjum og hirðmönnum á eftir sér. Um leið varð Líönu á að líta framan í Mainan ósjálfrátt. Hann roðnaði dálítið og varirnar lcipruðust saman með bitru brosi. „Ha, ha, hún er þá í gulum silkikjól og með granatblóm í dökka hárinu!“ sagði hann lágt án þess að svara augnaráði konu sinnar. „Líana, littu á þessa fögru hertoga- frú! Svona var hún líka klædd danskvöldið, þegar hún lofaðist mér.“ Hertogafrúin var undrafögur ásýndum þetta kvöld. Ljósguli silkikjóllinn, sem féll í öldum niður um hana, en skýldi þó hvergi handleggjunum eða öxlunum, og hárauðu blómin, sem glóðu í hári liennar, sýndu enn ljósara, hve bjartan og fagran hörundslit hún hafði. Líönu varð ósjálfrátt að hugsa til þeirra kvenna, sem sagt er 1 ævintýrun- um, að hafi dansað elskhuga sína í hel. En ef fyrri tilfmningar skyldu nii aftur ná yfir- hönd yfir honum? Unga konan titraði við þá tilhugsun; hún tók þéttara um hand- leg hans með löngu, fallegu fingrunum sín- um, og þrýsti sér svo fast upp að honum, að hann gat vel fundið hjartslátt hennar. „Raoul!“ hvíslaði hún. Hann hrökk saman felmtsfullur — liér í nálægð hertogafrúarinnar og allrar hirð- arinnar varð eitt titrandi angistarldjóð til að koma því upp að ást hans væri endur- goldin. Hertogafrúin stanzaði sem snöggvast. Snjóhvíti kjóllinn, sem skein eins og tungls- geisli meðal allra hinna marglitu búninga, vakti þegar eftirtekt hennar, og það var auðséð, að hún varð engu síður forviða á því en aðrir, að unga konan skyldi koma; en hún hélt þegar leiðar sinnar, rétti mar- skálkinum hönd sína svo hann gæti kysst liana, bauð hann náðarsamlegast velkom- inn, og heilsaði öllum öðrum mjög svo mildi- lega, þangað til hún kom til ungu hjón- anna. „Þetta var þó furðulegt! Við höfum hald- ið, að lærðu einsetukonunni í Schönwerth væri svo illa við allt félagslíf og þess háttar samkomur, að við þorðum alls ekki að senda henni beinlínis boð að koma til þessarar litlu kvöldskemmtunar,“ sagði hún kulda- lega og eins og til afsökunar á því, að ungu konunni hefði ekki verið boðið í raim og veru. Líana varð um leið eldrauð og leit hræðslulega til þess, sem liafði leitt hana inn í þennan sal, en það leit út fyrir, að hann tæki alls ekki eftir þeirri óvild, sem lýsti sér í framkomu hertogafrúarinnar á svo ruddlegan hátt. „Maður verður að gera undantekningar frá venjunni, þegar miklar breytingar verða á högum þeirra,“ sagði hann einmitt í sín- um gamla storkunarróm, sem menn óttuðust mest, „þess vegna hef ég fengið barónsfrúna til að fylgja mér hingað í dag — við för- um næstu daga héðan.“ „Er það satt, Mainan barón ?“ hrópaði liertogafrúin við þessi óvæntu gleðitíðindi. „Þér þolið auðvitað ekki við fyrir löngun til að leggja af stað í þessa Austurlanda- ferð. Ég held að þér mynduð leggja af stað tafarlaust, jafnvel þótt heimurinn stæði í HEIMILISBLAÐIÐ 255

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.