Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 36

Heimilisblaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 36
björtu báli. Jæja! Binhvernveginn þreytist þér vonandi á að ferðast og snúið þá heim- leiðis, og verðið þá ef til vill ögn — við- fangsbetri.“ Andlit bennar ljómaði af fögnuði, einmitt. af því að hún þóttist nú hafa fengið fulla vissu fyrir að nú væri það að koma fram, sem hún liafði þráð svo lengi, og öllu mundi verða lokið innan fárra daga; þó sárgramd- ist henni live róleg og örugg unga konan var við hlið mannsins síns. „Þér hlakkið auðvitað til að komast aft- ur í kyrrlætið í Rúdisdorf V ‘ spurði hún og gaut um leið hatursfullum augum til fögru, mjóu fingranna, sem henni var svo meinilla við. „Eg er liætt við að fara til Rúdisdorí, yðar hátign,“ svaraði Líana feimin og vandræðaleg; henni féll afarilla að segja þetta; en það var ekki unnt að komast hjá því, þar eð spurt var svona beint. Hertogafrúin hörfaði ósjálfrátt aftur á bak. „Hvað þá ? Þér ætlið að verða ... ?“ Storkunarbros kom á bláhvítu varirnar. „Hó! ég skil livað þér farið! Þér eruð göf- uglynd og viljið ekki yfirgefa gamla mar- skálkinn,“ sagði hún og bar ört á um leið og hún kinkaði kolli í áttina til gamla mannsins, sem hafði smáfært sig nær. Þrátt fyrir ysinn og suðmia í salnum, liafði hann með sinni næmu liirðmanns lieyrn heyrt hver torð. IJann greip nú hend- inni til hjartans og sagði mótmælandi með liátíðlegri röddu: „Yðar hátign verður allra náðugast að fyrirgefa — yðar gamli, trúi liirðmarskálk- ur á alls engan þátt í þessari ákvörðun.“ „Nei, ]>að er alveg satt, að föðurbróðir minn liefur ekkert atkvæði átt um það,“ sagði Mainan rólega til frekkari fullvissu, og það með svo hárri og sýrri rödd, að frekar leit út fyrir að liann segði það við áhorfendurna en liertogafrúna. ,Hversu mikið sem mig langar til að skiklja hann eftir í höndum þeirra, sem geta hlúð að honum með ástríkum örmum, þá er ég þó sjálfum mér æstur í þessu tilfelli. Eg gat ekki fengið af mér að fara strax að skilja við konuna mína, og hún hefur því af brjóstgæðum við mig heitið mér því að fara með mér.“ Hertogafrúin breiddi allt í einu út blæ- væng sinn og veifaði honum í ákafa, eins og henni fyndist allt of heitt þarna inni. „Svo kemur þá einn sérvizkudinturinn enn, Mainan baón,“ sagði hún og reyndi árangurslaust að sýnast kát. „Hingað til hafið þér lagt allt kapp á að auka og vernda þann dularfulla ljóma, sem stafar af ævin- tyramanninum, ferðalangnum, þér vilduð einn vera ævintýraprinsinn, og nú ætlið þér allt í einu að koma fram í heiminum með þesa vizkugyðju við hlið yðar — það er ekki svo vitlaust. Það getur vakið eftirtekt og gert menn forviða.“ „Varla verður það til lengdar, yðar há- tign,“ sagði Mainan og,brosti rólega, „þar eð ég ætla mér ekki til Austurlanda „með þessari nýmóðins vizkugyðju“ minni, held- ur draga mig í hlé og fara til afskekktrar hallar, sem ég á í Frakklandi og heitir Blankenau/‘ Iíennar liátign sneri við og gaf merki með hendinni um að byrja sönginn. Allir, sem þekktu hana nánar, titruðu af ótta. Þegar hún var svona náföl, starði svona stórum augum fram undan sér, klemmdi varirnar svona aftur og setti hökuna svona fram, var hún ekki vön að gefa grið eða láta sínar betri tilfinningar fá yfirhönd. VIII. Illjómleikaflokkurinn lék snilldarlega á hljóðfærin og söngur söngmeyjarinnar var töfrandi. Hennar hátign, hertogafrúin gaf sjálf merki um að taka því með dynjandi lófaklappi, og þegar hlé varð á, sýndi hún söngmeynni öll merki ánægju sinnar og mildi. Þetta gekk allt eins og í sögu, og þó það væri allt innan vébanda hirðsiðanna, virtist það ekkert þvingandi, svo Líana fór að halda að engum væri órótt innan brjósts nema lienni, og að blóðið þyti eimmgis um æðarnar á henni eins og hún liefði hitasótt. Hún gat ekki litið á steingerfisandlit her- togfarúarinnar, án þess að finna til óstjórn- legs ótta. Bara að hún mætti yfirgefa þenn- an sal með öllu þessu skrautbúna fólki! En lausnarstundin var ekki enn komin. Framn. 256 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.