Heimilisblaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 37
Við, sem vinnum eldhússtörjin
„Bráðmn koma blessuð jólin, börnin fara
að hlakka til“. Og ekki má fullorðna fólkið
valda þeim vonbrigðum. Og þegar við er-
um einu sinni byrjuð á jólaundirbúningn-
um þá njótum við þess ekki síður en börnin.
Smákökur má baka nokkuð löngu fyrir
jól, og hér eru uppskriftir af nokkrum teg-
undum.
Mokkakökur:
100 gr. smjör
100 gr. sykur
1 egg
200 gr. hveiti
1 msk. kaffiduft
V2 tsk. lijartasalt
Glasúr úr ca.:
125 gr. flórsykur
1 msk. kaffiduft
2—3 msk. sjóðandi kaffi
Linið smjörið og hrærið vel saman við syk-
ur, hrærið síðan egginu út í og hnoðið síð-
an deigið léttilega með hveiti, kaffidufti og
hjartasalti. Látið deigið á kaldan stað og
látið það bíða svolitla stund áður en þið
takið það og fletjið það út og skerið út í
aflangar kökur. Bakist við góðan liita
(200°) í ea 10 mín. Kökurnar eru penslað-
ar með glasúrinu og það verður að vera
orðið vel þurrt áður en kökurnar eru lagð-
ar í kassa með pappír á milli laga.
Súkkulað ihj ö rtu.
Sama deig og í mokkakökunum nema hvað
kakó er látið út í í staðinn fyrir kaffiduft.
Deigið er flatt út og skorið út í hjörtu, sem
eru svo pensluð með bræddu súkkulaði og
eru skreyttar með afhýddum möndlum og
e. t. v. silfurkúlum 0g grænum cocktailberj-
um eða súkkati.
Kaupmannahafnarkökur:
200 gr. smjör
200 gr. liveiti
100 gr. flórsykur
15 rauð cocktailber
15 græn cocktailber
20 afhýddar möndlur
Látið smjörið út í liveitið og hnoðið létt
ásamt flórsykri, stórum bitum af cocktail-
berjum og grófhökkuðum möndlum. Búið
til aflanga rúllu úr deiginu, álíka svera og
kústskaft. Leggið rúlluna á bretti, sem hveiti
hefur verið sáldrað á. Látið rúlluna á kald-
an stað í að minnsta kosti 1 klst., gjarna
lengur. Sneiðið svo rúlluna niður í smákölt-
ur, sem eru látnar á smurða plötu. Bakað-
ar í 12—13 mín. við nokkuð góðan hita
(185°).
Skornar hrúnar kökur með möndlum:
1 dl. síróp
1 dl. sykur
150 gr. smjör
325 gr. hveiti
IV2 tsk. natron
2 tsk. kanel
V2 tsk. negull
V2 tsk. engifer
50 gr. afhýddar, gróft saxaðar
möndlur
50 gr. fínt saxað súkkat
Látið suðuna koma upp á sírópinu, sykrin-
um og smjörinu og kælið blönduna alveg.
Blandið kryddinu, natroni, möndlum og
súkkati vel saman og hnoðið saman við
blönduna. Þetta deig er nokkuð lint, en það
á þó að vera hægt að búa til tvær lengjur
nokkuð sverari en kústskaft. Látið á fjöl,
sem búið er að setja hveiti á og geymið rúll-
urnar í ísskáp til næsta dags eða lengur. Ef
deigið er mjög lint er ráð að taka lengj-
urnar út úr ísskápnum eftir 1 klst. og laga
rúllurnar. Skerið kökurnar eins þmmt og
hægt er og bakið á smurðri plötu við góð-
an hita (200°) í ca 8 mín.
Mjög góð formkaka: Sœlgœtiskaka.
125 gr. smjör
150 gr. sykur
3 egg
1 eggjahvíta
200 gr. liveiti
50 gr. kartöflumjöl
2 tsk. lyftiduft
2—3 msk. litlar rúsínur
2 msk. grófsaxaðir hnetukjarnar
HEIMILISBLAÐIÐ
257