Heimilisblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 2
VORMORGUNN
Morgunsunna hrein og hlý,
himinunna gimsteinn fagur,
er nú runninn upp á ný,
ótal munnum fagnar dagur.
Blundi hrinda blómin mín
blikar lind í rinda háum.
Yndismynd þín endurskín
undir tindum skuggablúum.
Rís af dvala og rökkurhryggS
— rýkur um bala hlýnar ge'ði, —
firðir, dalir, fjall og byggð,
fjöm tala, sæld og gleði.
Lækir flétta flaumbönd nett,
fossa, skvetta, gera iður.
Stikla léttan klett af klet,
kasta þéttum úða niður.
Hljóma lengi í heiðar b'rún
hörpustrengir fossins bjarta.
Grænar engjar, glituð tún
geislum tengja sér að hjarta.
Sezt ég niður hátt í hlíð,
hlusta’ á kliðinn ástarkæra.
Hér er biðin hæg og þýð
hjartans frið að endurnæra.
Yndið lyngi angar frá,
yfir syngja raddir kunnar.
Mosabyngjum blika á
blómadyngjur náttúrunnar.
Sé ég yfir sældar reit
sjónum hrifinn fram til ósa.
Gulli drifinn sær og sveit
sindrar í bifi morgunljósa.
Lárus Sigurjónsson.
HEBVIILISBLAÐIÐ
kemur út annan hvern mánuð, tvö blöð saman, 36 bls. Utanáskrift: Heimilisblaðið, Bergstaðastræti 27, póst-
Verð árgangsins er 1000 krónur. hólf 304. Simi 14200.