Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 26

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 26
Þá tók Eleazar til máls og talaði af miklum móði: — Já, vissulega er tíminn kominn, Sím- on bróðir; hversu lengi eigum vér að bíða og þola? Lífið er stutt og krefst þess, að vér hefjumst handa. Ef vér berum áræði til að grípa til vopna, þá munum vér inn- an skamms hafa rekið heiðingjana á flótta úr köstulum sínum og stökkt þeim úr landi. Erum vér eigi allir á eitt sáttir um það, bræður mínir? Og allir tóku undir það einróma. Þá stóð Jósefus upp og sagði af mikilli alvöru: — Bræður, mitt ráð skal vera á þessa leið: Hugsum út í, hvað við gerum, og ger- um þjóð vora ekki ógæfusamari en hún er. Hugsum okkur Rómverjana og allar hersveitir þeirra. Eg þekki það — því að ég er nýkominn hingað frá Rómaborg, beina leið frá herbúðum Rómverja. Þá hóf einhver upp raust sína: — Já, víst er um það, Jósefus, þú þekkir Rómverja, en vora þjóð þekkir þú ekki — þú þekkir ekki hatur hennar og hug- rekki. — Jú, ég kannast við hvorutveggja, svar- aði Jósefus hóglega, — en hvað sem því líður, þá sé ég í anda hinn litla herafla vorn, — ljónhugaðir erum vér að vísu, en óvanir vopnaburði; hins vegar sé ég hinar stálklæddu og æfðu hersveitir keisarans. Bræður mínir, trúið mér, við megnum ekk- ert gegn Rómverjum. Nú rauk Eleazar upp og sagði með log- andi mælsku: — Jósefus, þú veizt ekki hvað Israel er stór og sterk. Er ekki trú vor útbreidd fjær og nær — já, um allan heim? Tel þú hópana, sem streyma til Jerúsalem á pásk- unum, til að biðjast fyrir í musteri voru. Og köllum svo á þá, sem búa utan landa- mæra vorra — á Egyptalandi og enn lengra burtu — hinum megin Nílar — í Afríku — þá, sem búa í Antiokiu og alla leið norð- ur að Kaspi-hafi — þá, sem búa á Grikk- landi og þá, sem búa á eyjum í hafinu — á Spáni — í Persíu — já, í sjálfri Róma- borg. Kallaðu á þá alla, og þá muntu sjá — ef til orrustu kemur við Rómverja, þá mun enginn þeirra gerast liðhlaupi. — Vel farast þér orð, Eleazar, greip nú einn öldunganna fram í, — því að þáð er satt, að ef til orrustu kemur við Rómverja, þá mun enginn Israelsmaður bregðast. Og þú, Jósefus, mælti hann og sneri sér að Jósefusi, vertu foringi þjóðar vorrar. Jósefus ætlaði einhverju að svara, .en ræðumaður lét hann ekki komast að, held- ur hélt áfram að tala: — Já, vissulega. Vertu foringi vor! Þú ert hraustur og reyndur. Þú átt til presta ætt þína að rekja; hin göfuga móðir þín er jafnvel af konungablóði Hasmoneanna, er einu sinni réðu fyrir frjálsu Júdaríki. Jós- efus, til þín lítum vér allir, vert þú for- ingi vor, gjör þú Israel að frjálsri þjóð. Hann felldi talið og leit vonaraugum til Jósefusar. Jósefus stóð stundarkorn nið- urlútur, en síðan svaraði hann áherzlu- laust: — Rabbí, talaðu ekki svona. Ef uppreisn væri gerð móti Rómverjum, þá væri það sama sem að leiða endalausar þjáingar yfir þjóð vora. — Rómverjar og aftur Rómverjar, sagði Eleazar, hvað eigum vér að halda um þig? Kjóstu um tvo kosti. Vertu með oss eða á móti oss. — Bræður, þér gerið mér rangt til, þér misskiljið góðan tilgang hjá mér, sagði Jósefus með mikilli alvöru. — Ég hata Rómverja engu minna en þið, og ef til orrustu kemur, þá skal ég ekki verða síð- astur til að leggja líf mitt í sölurnar fyrir frelsi þjóðar vorrar. En ég segi það enn og aftur: Rösum ekki fyrir ráð fram, bíð- um heldur. — Nei, Jósefus, vér viljum ekki bíða, hrópaði Eleazar. — Tíminn er kominn, að 62 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.