Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 9

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 9
ár þýðir að þú ert fullvaxta stúlka.“ Þeg- ar Alice virtist ekki ætla að mótmæla þessu, hélt hann áfram: „Fullvaxta — og gjaf- vaxta, Alice.“ „Ó, pabbi!“ sagði Alice lágt og brosti við, nokkuð óörugg. „Maður, sem ég og hún frænka þín gæt- um með gleði horft eftir þér í hendurnar á, hann hefur beðið um hönd þína.“ Alice kipptist eilítið við, en brosið hvarf af andliti hennar. „Það er nýi aðstoðarpresturinn okkar, hann séra George William Fitzgerald, mað- ur með ljómandi sambönd ...“ mælti próf- essorinn með rödd sem svipaði mjög til systur hans, frú Mason. „Ó, pabbi!“ sagði Alice aftur, og í þetta sinn var engu líkara en hún gripi andann á lofti óttaslegin. Prófessorinn leit upp. Já, Clara hafði á réttu að standa: Alice var ósköp ung og barnaleg á að sjá — næstum eins og krakki sem var að því kominn að skæla. „Annað var það nú ekki, góða mín,“ sagði hann þá snöggur upp á lagið. „Ég er reiðubúinn að taka á móti væntanlegum eiginmanni þínum þegar ykkur þykir henta, og svo verðið þið að sjá um allan undirbúning með henni frænku þinni og hlífa mér við öllu frekara ónæði.“ Próf- essorinn gerði handarhreyfingu svipað því sem hann væri að slá frá sér ósköp venju- lega húsflugu sem annar eins skordýra- fræðingur og hann hafði ekki minnsta áhuga á. „En pabbi minn,“ mælti Alice lágt. „Ég -— ég — er þegar trúlofuð — honum Jack.“ Prófessorinn leit hægt upp og hnyklaði örlítið brýnnar. „Jack? Og hver er nú Jack, ef ég má spyrja?“ „Hann Jack — Jack Ferguson. Hann vinnur í banka,“ stamaði Alice. „Ó, pabbi, hann er svo duglegur. Hann er tuttugu og þriggja ára og ...“ „Tuttugu og þriggja ára!“ edurtók próf- essorinn lágt, og það var eitthvað í rödd hans, sem ekki boðaði gott. „Bamaskapur! Þú giftist þeim manni sem ég og hún frænka þín höfum valið handa þér. Og svo vil ég fá að vera í friði fyrir öllu frekara kjaftæði!“ „En pabbi . . . “ „Nei, nú verðurðu að hætta. Ég vil ekki heyra orð frekar. Farðu inn til hennar frænku þinnar og talaðu við hana. Hún hefur tíma og tækifæri til að útskýra allt fyrir þér, sem þú þarft að vita.“ „Hún frænka!“ hrópaði Alice, og það mátti greinilega heyra á henni, að hún var ekki beint ánægð með þetta. En prófessorinn svaraði engu. Hann var aftur farinn að bogra yfir bjöllunum með stækkunarglerið í höndunum. Alice stóð andartak kyrr í sömu sporum, en síðan læddist hún út og lokaði dyrunum hljóð- laust á eftir sér. Frammi á ganginum staðnæmdist hún og lagði við eyru. 1 öðrum enda hans stóðu dyrnar opnar inn í stóru stofuna sem sjald- an var nokkuð notuð, og þaðan heyrði hún málróm frænku sinnar og ráðskonunnar. Ekki vildi hún fyrir nokkurn mun þurfa að hitta Clöru frænku sína núna. Hún læddist því eins hljóðlega og hún gat fram að stóru eikardyrunum, hljóp síðan við fót gegnum garðinn og þaðan sem fætur tog- uðu út í skóg. Það var ekki fyrr en hún var komin drjúgan spöl inn í skóginn að hún nam staðar — og þá mest vegna þess að hún var gripin sterkum örmum og henni hald- ið fastri. Og höfuð hennar lét fallast að sterklegri öxl, um leið og tárin streymdu niður vanga henni. „Alice, elsku Alice mín, hvað er þetta eiginlega?" spurði Jack óttasleginn og reyndi að fá hana til að líta upp. „Ó, Jack,“ sagði hún með ekka. „Þau vilja að ég giftist kapiláninum. Frænka heimilisblaðið 45

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.