Heimilisblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 6
fallið á brautarteina. Þetta sarf hlýtur að
vera eitthvert það einmanalegasta sem um
getur. Á stöku stað er raflínum komið fyr-
ir þvert yfir hlíðar þar sem líklegt er að
snjór falli, til þess gerðum að bera boð
um slíkt. Þegar snjóhengjan hrapar, brest-
ur línan, straumurinn rofnar og lestirnar
stöðvast sjálfkrafa.
Lengi vel komust Svisslendingar af, hvað
þetta snertir, með því að hlaða háa grjót-
garða þar sem brattinn var hvað mestur
upp af brautarteinunum. Nú hafa þeir
horfið að öðru nýrra: sverum ál-stólpum,
sem komið er fyrir með aðstoð þyrla. Einn-
ig eru tré góður varnarveggur mót snjó-
þunga, enda er þeim plantað í milljóna-
vís á hættulegum stöðum.
Á aðalsamgöngubrautum er unnið allan
ársins hring, hvernig sem viðrar,en á
smærri leiðunum, sem liggja inn í af-
skekktustu dali, er yfirleitt látið í minni
pokann fyrir hinum hvíta óvini. Þegar vet-
ur færist nær, er meira að segja gengið
svo langt á sumum stöðum að taka brýrn-
ar niður, til þess að snjóskriður skamm-
degismánaðanna sópi þeim ekki burt.
Járnbrautirnar gegna lykilhlutverki í
varnarkerfi Sviss. Jafnvel í sérhverri
minnstu jámbrautarstöð fyrirfinnst pen-
ingaskápur, þar sem er innsiglað umslag
með fyrirmælum um hernaðarleg viðbrögð,
ef á þarf að halda. Ef til stríðs kæmi, þá
myndu hermennirnir einfaldlega halda að
heiman hver um sig í einkennisbúningum
sínum í átt til næstu brautarstöðvar og
með þau vopn sem þeir hafa geymd hjá
sér heima í klæðaskápnum. Á tveim sól-
arhringum gæti hið litla og friðsæla Sviss,
sem raunverulega er vel hervætt, kvatt út
600.000 manna lið, reiðubúið til að verja
landið.
Jafnvel þótt Svisslendingar hafi fært
þær einstöku fórnir sem á hefur verið
minnzt til að koma upp og viðhalda sínu
einstæða járnbrautarkerfi, þá hafa þeir
þó komið því svo fyrir, að undir alveg sér-
stökum kringumstæðum gætu þeir eyði-
lagt allt heila kerfið með því að ýta á fá-
eina hnappa. Sérhver jarðgöng aðalbraut-
anna, helztu brýrnar og allt merkjakerfið
er sundurgrafið af sprengjustæðum, og
innan einnar klukkustundar er hægt að
sækja þessar sprengjur í geymslurnar uppi
í fjöllunum, koma þeim fyrir og gera þær
fullklárar til eyðileggingar ef með þarf.
Á síðari árum hafa fyrirsvarsmenn járn-
brautanna lagt sig fram um það — með
hugkvæmni sem varla stendur að baki snilli
þeirra á tæknisviðinu — að veita ferða-
mönnum sem allra bezta þjónustu. Um
þvera og endilanga brautarvagnana ganga
ungar og fallegar stúlkur til beina og aka
á undan sér krásum hlöðnum borðum með
kaffi, smurðu brauði og súkkulaði. Á hinni
42
HEIMILISBLAÐIÐ