Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 5
sprenging leiddi reyndar annað í ljós. Þús- undir tonna af vatni og grjóti ruddist fram og fyllti næstum upp í kílómetra langt stykki af göngunum, þar sem 25 manns lokuðust inni. Ógerningur reyndist að ná í líkin. Hin vota og kalda gröf'þeirra var nxúruð aftur og grafin ný göng annars staðar . .. Einhver erfiðasta þrautin var gerð tann- hjólabrautarinnar upp Jungfrau-brattann. Stöðin, sem er í 3454 metra hæð yfir sjáv- armáli, liggur utan í brattri fjallshlíð. Jafnvel um hásumarið er hægt að fara á skauta eða skíði rétt fyrir uan húsdyrn- ar. Það segir dálítið um verkefnið, að grafa varð göng, sem voru rúmir átta kílómerar. Hafi jarðgöngin valdið Svisslendingum heilabrotum, þá hafa þeir ekki síður þurft að leggja höfuðin í bleyti varðandi gerð hinna mörgu járnbrautarbrúa sem þeir hafa nauðsynlega þurft að framkvæma. Á 85 kílómetra langri leið eru að meðal- tali tvær brýr á hverjum kílómetra. Þriðj- ungur Lötschberg-brautarinnar (Thun- Brig) vindur sig gegnum fjalllendið eftir háum brúm. Og á annarri leið ekur lestin til sudurs í slíkri hæð, að maður fær í mag- ann, hverfur síðan inn í fjallið, vindur sig þar upp á við og kemur út aftur og ekur þá til norðurs! Rekstur járnbrautanna í Sviss er einnig stöðugur höfuðverkur þeirra, sem um þurfa að fjalla. Grjóthrun og snjóflóð eru einhverjir helztu erfiðleikamir. Árið 1927 gróf heljarmikið flóð mikinn hluta Simp- lon-brautarinnar undir urð og mold. Það tók heila viku að ryðja skriðunni burt. Árið 1962 féll snjóflóð á aðalbrautina milli norður- og suðurhluta landsins á annasam- asta árstíma, tveim dögum fyrir jól. Af- leiðingin varð samgönguteppa sem á sér fá dæmi í sögunni; stanzaðar lestir náðu alla leið til Frankfurt! Svisslendingar hafa lært að líta á snjó- inn sem undirförulan og einatt lífshættu- legan óvin, og hverja stund verður að vera á verði gagnvart því, að hann komi ekki að óvörum. Stundum grípa þeir til þess bragðs að færa vígstöðvarnar yfir í óvina- búðirnar og hefja þá skothríð á snjóhengj- urnar úr járnbrautarvögnunum eða af flutningabílunum. Sprengingar þessar framleiða snjóflóð, og á meðan er allri umferð haldið í skefjum, unz snjóplógarn- ir hafa rutt snjóbákninu af brautum og vegum. Jámbrautirnar hafa dugmikla skíða- menn til að halda uppi slíkri skothríð á hættulegum stöðum. Auk þessa hafa hópar vaktmanna aðsetur í vissum stöðvum með fram brautunum, reiðubúnir til þess að koma skilaboðum áleiðis, ef skriður hafa heimilisblaðið 41

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.