Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Síða 8

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Síða 8
skaut sér og mælti hátignarlega: „Alice er kominn á þann aldur, þegar ung stúlka fer gjarnan að hugleiða það að giftast." „Giftast — giftast!“ tautaði prófessor- inn fyrirlitlega, og þó rétt eins og hann hefði ekki fullkomlega skilið innihald svo ótímabærra orða. „Það liggur nú víst ekki svo mikið á því. Varst þú ekki orðin þrí- tug þegar ..." „Jú, Henry, að vísu var ég farin að nálg- ast þrítugt þegar ég, hm . . . “ greip frú Mason fram í fyrir honum af myndugleik. „En ég var líka siðferðilega sterk og stað- föst stúlka, sem fullkomlega kunni fótum mínum forráð. En Alice er veikgeðja og skilur ekki hlutina. Maður má eiga von á því að hún láta flækja sér í eitt og ann- að, ef maður hefur ekki vit fyrir henni og sjá til þess, að hún gangi að eiga góðan og þroskaðan mann . . . “ „Nú, en er það þá einhver sérstakur sem kærir sig um hana?“ spurði prófessorinn klumsa. „Það er nú einmitt það, Henry. Einmitt sá maður, sem ég gæti svo fjarska vel hugsað mér að leggja bróðurdóttur mína í hendurnar á. Nýi aðstoðarpresturinn, Ge- orge William Fitzgerald — maður með góð sambönd að auki.“ „Aðstoðarpresturinn!“ hálfhrópaði próf- essorinn. „Já, það er alveg ágætis náungi. En-i — er hann ekki þó nokkuð eldri en Alice?“ „Hann er þrjátíu og tveggja. En hann er líka svo virðulegur, að hann sýnist eldri en hann er. Reyndar varstu sjálfur átján árum eldri en þín kona.“ „Já. Já, satt segirðu, svo sannarlega," tautaði prófessorinn og fiktaði löngunar- fullur við skordýraöskjuna. „Nú, en þá er það klappað og klárt, ha ? Ég fel þér þetta fullkomlega í hendur, Clara. Gerðu hvað þér sýnist — og kauptu það sem stúlkuna kann að vanhaga um. Bara að þú sjáir til þess, að ég verði ekki ónáðaður! Ég er svo hræddur um, að prófessor Scchultze verði fyrri til að skila sinni ritgerð, en þú veizt að ...“ „Ojá,“ greip frá Mason fram í. „Ætli ég viti það ekki. En viltu þá láta svo lítið og tala við hana dóttur þína og segja henni sjálfur þína afstöðu.“ „Ég!“ hrópaði prófessorinn angistar- fullur. „Þú, já! Eins og sakir standa er Alice eitthvað uppsigað við mig, en hún ber að sjálfsögðu virðingu fyrir þér. Auk þess er það það minnsa sem þú getur gert fyrir barnið. Þegar þú hefur lokið því af að tala við hana, þá get ég lofað þér því, að þú skalt fá að sinna skordýrunum þínum óáreittur.“ Finchby prófessor stundi þungan og í fullkominni uppgjöf. „Æ-jæja-jæja! Sendu þá telpukornið inn til mín,“ tautaði hann. Ekki var systirin fyrr gengin út úr dyr- unum en prófessorinn sökkti sér niður í verkefni sitt. Með mikilli nærfærni og um- hyggju tók hann upp silfurgljáandi bjöllu og hélt henni undir stækkunargleri. „Hví- lík fegurð — hvílík dásemdar fegurð!“ sagði hann lágt og gleymdi sér svo við þessa sjón, að hann heyrði hvorki né sá, fyrr en lág rödd barst honum frá veru sem stóð rétt við hlið hans. „Vildir þú tala eitthvað við mig, pabbi?“ „Æjá, Alice litla,“ sagði prófessorinn og ræskti sig, um leið og hann velti bjöll- unni gaumgæfinn fyrir sér við stækkun- arglerið. Svo hélt hann áfram ákafur: „Þetta hérna er fjarska sjaldgæft eintak — mjög fáséð. — Hún lifir í Suður-Ame- ríku.“ Svo hóf hann að þylja nákvæma lýsingu á venjum og lífskjörum bjölluteg- undarinnar, en tók sig svo allt í einu á og setti hana á sinn stað í öskjunni. Þá ræskti hann sig aftur, lagfærði gleraugun og hóf máls í eins konar kennaratón: „Nú ert þú orðin átján ára, Alice litla, og átján i 44 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.