Heimilisblaðið - 01.03.1980, Side 34
Kalli og Palli þuría að flytja húsið sitt og hafa þess
vegna grafið djúpa gryfju undir húsinu sínu og lokka
flóðhestinn þangað niður. Palli situr í glugganum með
gulrót í bandi og þegar María feita kemur auga á hana,
flýtir hún sér af stað til að ná í hana. Þegar hún þýtur
upp úr gryfjunni með húsið á bakinu á hún að fara
á nýja staðinn þar sem húsið á að standa. María
hleypur hraðar og hraðar til að ná í gulrótina, en þá
rekst húsið á tré og splundrast allt f sundur. Aumingja
Kalli og Palli eiga nú ekki hús lengur.
Ó, villimennirnir eru í bardagahug og Kalli og Palli
flýta sér heim að gæta húss síns. Æ, hvað þeir eiga
annríkt. Þeir safa saman öllum speglum sínum og
festa þá í glugga og dyr, og síðan setjast þeir og bíða
rólegir þess að negramir komi. Þegar þeir nálgast
húsið ráðast þeir að því. En þegar negramir koma fast
að því og sjá sjálfa sig í speglunum, verða þeir hrædd-
ir. Þeir héldu, að Kalli og Palli væru einir heima, en
sjá nú að húsið er fullt af negrum, sem eru alveg eins
villtir og þeir sjálfir. Þeir snúa frá og ílýja óttaslegnir.