Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1915, Blaðsíða 44
Fram í ljóssins flaum
fegra lífið fjrýzl.
Sjá, í dýrðar-draum
dauðinn sjálfur snýst!
Drottins anda duftkorn sérhvert minsl,
dásamlegra undra safn, er fylt, —
hljómbrot lægsta’ í okkar vitund inst
æðra hljómvalds leiftursprota’ er stilt.
Sjáið sigur hans,
sigur skaparans:
duftið orðið íbúð kærleikans!
Ó, sú undra dýrð
elsku, mátlar, vits,
birtist bjartri skýrð
blikrún stjörnu-glils!
Syngið, syngið, — heyrið hjartaslög
heilags guðs í jólanætur blæ!
Hringið, hringið, — ódauðleikans Iög
leiftra staðfest yfir mold og sæ!
Mikli meistarinn,
mannkyns leiðtoginn,
hann er kominn, kominn — frelsarinn
Honum syngi sælt
sérhver tunga’ á jörð,
drótt af drottins ætt,
dýrð og þakkargjörð!
Guðm. Guðmimdsson.