Heimir - 01.10.1908, Blaðsíða 3
HEIMIR
75
Og lágt flýgur nágagl og náttuglan hrín
því nóttin er komin í heimsókn til þín.
Nú hveríur alt skrautiö, sem himininn gaí
og hásumarskveldiö þér, innanlands-haf.
Og undarleg, þreytandi þunglyndisleg
hjá þér finnst mér nóttin og óyndisleg.
Að óljúfar minningarsé í því sök
í sortanum nætur eg leiði mín rök.
Að harmþáttur lífsins sé ofinn hér inn
i eyðilegleikann og náttfriðinn þinn.
KRISTINN STEPlNSSON.
Hannes Hafsteinn.
Útdráttur úr erindi, fluttu á Menningiirfölags fundi 14. Okt. 1008,
af
Síra Rögnvaldi Péturssyni
—Mér er vandi stör á hönduin í kveld, kæru samfélagsmenn.
Umræðuefni mitt er Hannes lögfræðingur Hafsteinn, fyrsti Ráð-
herra íslands, eitt freinsta skáld Islendinga. Persóna hans
stendur oss svo nærri í samtíð, að það er ervitt að meta gildi
hennar rétt. Starf hans og verk liggur oss svo nærri hjarta, að
margur finnur til þess, hversu erfitt það er, að ræða það mál
hitalaust. Ljóð hans og söngvar taka svo ofan í við eftirlætis
einkunnir vorra tíma, að menn eiga bágt með að sitja kyrrir
undir lestri þeirra. Maðurinn stendur sjálfur svo oíarlega að
mannlegum yfirburðum, að það er freistni að líta upp þangað
grænum öfundaraugum.